Fótbolti

Messi kominn í frí fram í febrúar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi skoraði þrjátíu mörk í 38 leikjum á árinu 2024. Hann kom alls að 49 mörkum liða sinna, Argentínu og Inter Miami.
Lionel Messi skoraði þrjátíu mörk í 38 leikjum á árinu 2024. Hann kom alls að 49 mörkum liða sinna, Argentínu og Inter Miami. Getty/Diana Carrillo

Argentínski knattspyrnumaðurinn Lionel Messi hefur spilað sinn síðasta leik á almanaksárinu 2024.

Lokaleikurinn var með argentínska landsliðinu á móti Perú í undankeppni HM 2026.

Argentínumenn unnu þar 1-0 sigur og Messi lagði upp sigurmarkið fyrir Lautaro Martinez á 55. mínútu.

Eftir sigurinn þá eru Argentínumenn aðeins tveimur sigurleikjum frá því að tryggja sér sæti á næsta heimsmeistaramóti.

Messi hefði að öllu eðlilegu átt að vera að spila með Inter Miami í úrslitakeppni MLS-deildarinnar á næstu vikum en þar sem deildarmeistararnir voru slegnir út í fyrstu umferð þá spilar ekki Messi fleiri leiki á árinu 2024.

Næsti keppnisleikur Messi verður því ekki fyrr en í febrúar þegar nýtt tímabil fer af stað í MLS deildinni.

Hinn 37 ára gamli Messi spilaði 38 leiki með Argentínu og Inter Miami á almanaksárinu 2024.

Í þessum leikjum skoraði hann 30 mörk og af 19 stoðsendingar. Hann varð deildarmeistari með Inter Miami og Suðurameríkumeistari með Argentínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×