Erlent

The Onion kaupir InfoWars

Samúel Karl Ólason skrifar
Alex Jones, fyrrverandi eigandi InfoWars segist ætla að halda áfram að framleiða efni á netinu.
Alex Jones, fyrrverandi eigandi InfoWars segist ætla að halda áfram að framleiða efni á netinu. AP/David J. Phillip,

Útgáfufélag ádeilumiðilsins The Onion keypti í morgun rekstrarfélag InfoWars, sem var áður í eigu Alex Jones. Kaupin voru gerð með stuðningi fjölskyldna barna sem dóu í Sandy Hook árásinni á árum áður en Jones skuldar þeim á annan milljarð dala.

Jones var dæmdur til að greiða foreldrum barna sem dóu í árásinni umfangsmiklar skaðabætur fyrir að hafa dreift samsæriskenningum um foreldrana og börn þeirra.

Þann 19. september árið 2012 voru tuttugu börn á aldrinum fimm til tíu ára skotin til bana í Sandy Hook auk sex starfsmanna skólans. Jones notaði InfoWars til að dreifa sögum um að börnin sem voru myrt hefðu ekki verið raunveruleg og að foreldrar þeirra væri leikarar. Foreldrarnir stóðu lengi frammi fyrir áreiti og ógnunum frá áhorfendum Jones.

Eftir langvarandi málaferli foreldranna gegn Jones komust dómarar árið 2022 að þeirri niðurstöðu að hann ætti að greiða þeim um 1,5 milljarða dala. Jones dró fæturna í að greiða foreldrunum þessar upphæðir og sagðist ekki hafa efni á því, á sama tíma og hann lifði í vellystingum.

Í september var svo ákveðið að InfoWars og tengdar eignir Jones yrðu seldar á uppboði.

Sjá einnig: InfoWars á uppboð í nóvember upp í skuld við syrgjandi fjölskyldur

InfoWars var sett á uppboð í morgun og keypt af The Onion. Til stendur að opna miðilinn á nýjan leik á næsta ári. Þá verður miðillinn rekinn með stuðningi samtakanna Everytown for Gun Safety, sem berjast fyrir hertum lögum varðandi skotvopnaeign í Bandaríkjunum.

The Onion keypti bæði miðilinn og aðrar eignir hans, eins og upptökuver og fæðubótarefnasöludeild. Samkvæmt AP fréttaveitunni liggur verð miðilsins ekki fyrir.

Í frétt New York Times segir að til standi að reka InfoWars sem háðsíðu af þeirri upprunalegu. Gera eigi grín að frægu og „skrítnu“ fólki á netinu sem geri út á samsæriskenningar og sölu fæðubótarefna.

Ben Collins, einn eigenda Onion, tísti um kaupin í morgun þar sem hann spurði hvort einhvern vantaði fæðubótarefni, sem var vinsæl söluvara Alex Jones.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×