Fótbolti

Orri Steinn einn verð­mætasti ungi leik­maður heims

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Orri Steinn Óskarsson hefur átt frábært ár. 
Orri Steinn Óskarsson hefur átt frábært ár.  Real Sociedad

Orri Steinn Óskarsson er hástökkvari á lista yfir verðmætustu leikmenn heims, 21 árs og yngri. Orri skipar 38. sæti listans og er talinn sjötti verðmætasti framherjinn.

CIES, rannsóknarhópur sem tekur saman ýmsa tölfræði og aðra hluti tengda fótbolta, skipaði hundrað manna listann. 

Orri var í upphafi sumars metinn á 15,2 milljónir evra af CIES. Hann var síðan keyptur af Real Sociedad frá FC Kaupmannahöfn í sumar á tuttugu milljónir evra.

Eftir góða spilamennsku undanfarið er virði hans nú talið vera 36 milljónir evra. Það er rúmlega tuttugu milljóna stökk, að mati CIES, á aðeins hálfu ári.

Orri hefur skorað tvö mörk í átta leikjum í spænsku úrvalsdeildinni en hann hefur aðeins spilað að meðaltali 36 mínútur í leik. Það gerir eitt mark á hverjum 146 mínútum. Þar að auki potaði hann inn fyrsta Evrópudeildarmarkinu í gær, í þriðja leiknum.

Hann skoraði einnig stórglæsilegt mark fyrir Ísland þegar hann brunaði upp hálfan völlinn og þrumaði í netið gegn Tyrklandi fyrir tæpum mánuði. Annað landsliðsmark hans á árinu eftir að hafa stangað boltann inn gegn Svartfjallalandi í september.

Sjötti verðmætasti framherjinn

Af framherjum er Endrick, Brassinn hjá Real Madrid, langverðmætastur en hann er metinn á 98 milljónir evra.

Jhon Durán (70 milljónir) og Evan Ferguson (61 milljón) fylgja eftir í öðru og þriðja sæti. Svo má finna Samu Omorodion (51 milljón) og Vitor Roque (43 milljónir) áður en komið er að Orra.

Á eftir honum eru svo George Ilenikhena, Youssoufa Moukoko og Santiago Castro sem eru allir metnir á rétt rúmar 35 milljónir.

Hinn átján ári gamli Endrick er talinn verðmætasti ungi framherjinn. Mateo Villalba/Getty Images

Fjórir metnir á meira en hundrað milljónir

Fjórir leikmenn eru metnir á meira en hundrað milljónir evra. Það ætti ekki að koma mörgum á óvart að Lamine Yamal sé í efsta sæti.

Hann er metinn á rúmar 180 milljónir evra en Alejandro Garnacho (115 milljónir), Warren Zaire-Emery (109 milljónir) og Sávio (101 milljón) fylgja honum eftir.

Lamine Yamal var nýlega valinn besti ungi leikmaður heims og því ætti ekki neinn að furða að hann sé sá verðmætasti. Ion Alcoba Beitia/Getty Images



Fleiri fréttir

Sjá meira


×