Körfubolti

Tommi með Nablann í bandi í Kefla­vík

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tómasi Steindórssyni fannst vissara að hafa Andra Má Eggertsson, Nablann, í ól.
Tómasi Steindórssyni fannst vissara að hafa Andra Má Eggertsson, Nablann, í ól. stöð 2 sport

Andri Már Eggertsson, Nablinn, og Tómas Steindórsson skelltu sér í menningar- og skemmtiferð til Keflavíkur vegna leiks Keflvíkinga og KR-inga í Bónus deild karla. Afraksturinn var sýndur í Körfuboltakvöldi Extra.

„Já, við erum mættir hingað til Keflavíkur. Það er leikdagur, Keflavík gegn KR, og granni og þykki, þeir eru mættir,“ sagði Andri þegar þeir félagar gengu eftir Hafnargötunni í Keflavík. 

„Þú hefur eiginlega aldrei komið til Keflavíkur þannig ég er svolítið að sýna þér staðinn,“ bætti Nablinn við en hann er kunnugri staðháttum í Keflavík en Tommi. Þeim stóra fannst þó vissara að hafa þann minni í bandi en það hélt ekki lengi.

Þeir félagar kíktu í búðarglugga og á skemmtistaðinn Brons áður en þeir fóru í Sláturhúsið þar sem þeir sáu Keflavík vinna góðan sigur, 94-88.

Nablinn og Tommi tóku meðal annars stöðuna á leikmönnum liðanna í upphitun og hittu Jón Halldór Eðvaldsson, sérfræðing Bónus Körfuboltakvölds, sem var léttur í skapi þrátt fyrir að býsnast yfir varnarleik sinna manna í Keflavík.

Félagarnir enduðu á að taka sína eigin útgáfu af „Keflavíkurnóttum“ Rúnars Júlíussonar og Jóhanns Helgasonar. Þá komst reyndar upp að Tommi hafði týnt Stöðvar 2 Sports svampinum af hljóðnemanum sínum.

Klippa: Körfuboltakvöld Extra - Nabblinn og Tommi Steindórs í Keflavík

Heimsókn þeirra Andra og Tomma til Keflavíkur má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×