Kennarinn sem hvarf Sigrún Birna Björnsdóttir Kaaber skrifar 31. október 2024 14:32 26 ára hóf ég kennslu í framhaldsskóla. Kenndi fagið sem ég brann fyrir og hafði dálæti á og hef enn, íslensku. Ég hóf kennsluna í október það ár þar sem ég var ráðin inn í afleysingar. Ég stökk inn, nýútskrifuð, bláeyg og öll af vilja og ákafa gerð. Kenndi fjölmennum hópum nemenda (25-32 í hóp) í 30 stundir á viku (full kennsla er 24 stundir), undirbjó hverja kennslustund, las ógrynni skáldsagna, ljóða og smásagna, fór yfir verkefni, ritgerðir, bjó til fjölbreytt kennsluefni úr bókmenntatextum, málfræðiæfingar, setningafræðiverkefni, skrifaði klípusögur, valdi fréttatexta um málefni líðandi stundar og kenndi í kvöldskóla til að drýgja tekjurnar svo eitthvað sé nefnt. Það er mikil vinna að vera nýr kennari og það vissi ég. Starfið var gefandi, skemmtilegt, lærdómsríkt og efldi sköpunargáfuna svo um munaði en erfitt, yfirgripsmikið og tók allan minn vökutíma. Ég lagði mig alla fram svo ég gæti kennt nemendunum íslensku sómasamlega á fjölbreyttan hátt og komið til móts við nemendur á þeirra forsendum enda er framhaldsskólinn fyrir alla. Kennsluefni á öllum skólastigum var þá og er af skornum skammti. Svona gekk þetta allt skólaárið og fram á það næsta. Um sumarið kenndi ég í sumarskóla til að drýgja tekjurnar. Ég fékk áframhaldandi ráðningu um haustið og ákvað að halda áfram kennslu. Ég mætti spræk og úthvíld til starfa að hausti. Ég kenndi með hjartanu. Nokkrum árum síðar tók ég einnig að mér (ásamt hefðbundinni íslenskukennslu) að kenna innflytjendum íslensku sem þeirra annað mál. Það var einstaklega skemmtileg, lærdómsrík og erfið áskorun. Fram að þessu hafði ég aðeins kennt þeim íslensku sem höfðu íslensku að móðurmáli. Ég renndi alveg blint í sjóinn án kennsluefnis, þekkingar á málaflokknum eða nokkurrar vitneskju yfirhöfuð. Ég hóf þegar að semja kennsluefni, málfræðiverkefni, finna og semja texta við hæfi, finna hlustunarefni, efni tengt íslenskri menningu og sitthvað fleira, fyrir utan að undirbúa hverja kennslustund og fara yfir verkefni og ritgerðir og allt hitt. Kennslan sjálf og nemendurnir kenndu mér sveigjanleika, umburðarlyndi og meira um mannleg samskipti og eðli en árin á undan höfðu gert. Nemendurnir kenndu mér mun meira en ég gat kennt þeim í íslensku. Það að kenna hópi þar sem töluð eru 12 móðurmál, enginn hefur sömu kunnáttu í málinu sem kennt er og menningarmunur er áþreifanlegur er erfiðara en orð fá lýst. Nemendahópurinn var flókinn, alls ekki auðlesinn og oft erfitt að koma námsefninu að en þá kom sveigjanleiki og hugmyndaauðgi að góðu haldi og augnablikið var nýtt til kennslu. Kennsluefni var ekki til, ekki námskrá frá hinu opinbera eða nokkuð annað. Álagið var mikið, hávaðinn í kennslustundum stundum óbærilegur en gleðin sem ríkti var smitandi og hélt glóðinni lifandi. Ég varð þess áskynja að nemendum leið vel og það var fyrir mestu, enda varð lítið sem ekkert brottfall. Ástríðan fyrir kennslunni var enn til staðar, ég kenndi enn með hjartanu. Aftur kenndi ég í sumarskóla til að drýgja tekjurnar en kom nú þreytt til vinnu að hausti. Ég hafði ekki náð að hlaða í sumarfríinu. Ég kenndi ekki aftur í sumarskóla. Nokkrum árum síðar tók ég einnig að mér (ásamt hefðbundinni íslenskukennslu og íslensku sem öðru máli) að kenna áfanga ætluðum þeim sem ekki höfðu náð tilskildum árangri í íslensku í grunnskóla. Nemendahópurinn var fjölbreyttur, hver og einn hafði sitthvað meðferðis í reynslumalnum sem hafði komið í veg fyrir eðlilega námsástundun. Sumir áttu við hegðunarvanda að stríða aðrir ofvirkni og einhverjir með flóknar greiningar og sérþarfir sem óbreyttur kennari eins og ég hafði ekki roð í. Ég hafði hvorki bjargir, verkfæri né þekkingu til að koma til móts við þarfir sumra þessara nemenda, því miður og það olli streitu og tók sinn toll. Nemendur í framhaldsskólum fá annars konar stuðning en börn í grunnskólum. Skólinn sem ég kenndi í er með gríðargóða og vel skipulagða stoðþjónustu en þarna var hún í burðarliðnum. Nemendur fá ekki stuðning inni í bekk nema í undantekningartilvikum. Kennslan var vissulega lærdómsrík og náðu flestir nemendur að blómstra og halda áfram. Ég settist við að undirbúa hverja kennslustund, fara yfir verkefni og ritgerðir og semja kennsluefni rétt eins og áður enda orðin vön mikilli og hraðri framleiðni. Ég vann alla þá vinnu sem ég hafði alltaf unnið. Jú ég gat skorið niður undirbúning sumra kennslustunda þar sem ég hafði kennt það efni áður en þegar kennari hættir að ná að endurnýja efni, kynna sér nýjungar og læra þá fer gamanið og kennslugleðin að kárna. Í raun fer hún að súrna. Þá hættir kennarinn að kenna með hjartanu. Ég hef ekki minnst á fjárhagsáhyggjur en þær voru þarna yfir og allt um kring öll þessi ár. Ég kenndi í 22 ár en síðustu árin var ég búin að vera. Ég hafði ekki lengur orku til að kynna mér nýtt kennsluefni eða meðtaka nýjungar í kennsluháttum, búa til ný verkefni eða kennsluefni, nýjar hugmyndir spruttu ekki upp og ég vann lágmarks vinnu til að lifa af. Ég sagði nei við öllum aukaverkefnum sem áður höfðu gefið mér mikið og ég hætti að þróa mig sem kennara, kennsluneistinn var slokknaður. Ég sem hafði haft ástríðu fyrir starfi mínu þurfti að hafa fyrir því að lifa af. Þegar kennslu var lokið á vorin fann ég fyrir svo mikilli þreytu að ég þurfti að hafa mig alla við. Fyrstu fjórar vikurnar í sumarfríi var ég að ná mér, suma daga vaknaði ég reyndar þannig að mér leið eins og vörubíll hefði keyrt yfir mig og ég komst ekki fram úr. Þá var komið nóg, kertið var brunnið í báða enda. Spurningin sem eftir stendur er af hverju? Af hverju getur svo gefandi, lifandi og skemmtilegt starf dregið máttinn úr þeim sem við það starfa? Af hverju eru kennarar útsettari fyrir álagi en aðrir? ...Eða eru þeir það? Ljóst er að eðli starfs kennara hefur breyst. Ljóst er að nemendahópurinn hefur breyst. Ljóst er að kröfur til kennara hafa breyst. En hvað hefur þá ekki breyst? Kennarar semja enn sértækt námsefni meðfram kennslustörfum, kennarar bregðast alltaf við eins og kostur er þegar þörf er á og kennarar slökkva stöðugt elda vegna úrræðaleysis. Eins og málið horfir við mér þá er kennara gert að vinna starf margra sérfræðinga í einu. Kennari er sérfræðingur kennslu, í því að miðla efni á fjölbreyttan hátt sem hentar þroska og námsgetu, hann er sérfræðingur í félagshæfni, hegðunaráskorunum og í þörfum nemenda sinna og veit hvers þeir þarfnast. Kennari veit hvenær nemandi þarfnast sérfræðiþjónustu, sértæks stuðnings en getur ekki brugðist við, hann ber jú ábyrgð á heilum hóp og oftar en ekki skortir úrræði. Kennari er ekki sérfræðingur í að sinna flóknum sérþörfum nemenda. Flóknar sérþarfir nemenda í skóla án aðgreiningar og fyrir alla krefjast annarrar sérfræðikunnáttu en kennarar hafa. Inn í skólana þarf annars konar sérfræðinga til starfa við hlið kennara svo sinna megi hverjum nemanda þannig að farsæld hans sé tryggð og hver og einn nái að blómstra á sínum forsendum, verði nýtur þjóðfélagsþegn. Hvernig getum við tryggt það? Ég réði mig til annarra starfa á annars konar vinnustað. Enn þann dag í dag er ég spurð hvort ég sakni ekki frísins sem kennarar fá. Ég sakna ákaflega margs í starfi kennarans eins og nemenda sem halda konu á tánum, samfélagsins í skólanum, samkennaranna, samræðnanna í frímínútum en ég sakna ekki þreytunnar og álagsins og þess að mæta eins og lurkum lamin til vinnu og þess að vera lömuð af þreytu. Það magnaða er að í dag mæti ég úthvíld til vinnu daglega og endurnærð eftir sumarfríið og það er eftirsóknarvert. Hér hef ég aðeins dregið upp útlínur starfsævi eins kennara sem hvarf frá störfum vegna álagsþátta sem keyrðu úr hófi fram. Og ég veit að ég er ekki ein. Ég styð réttlátar kröfur kennara. Höfundur er uppgjafaframhaldsskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kennaraverkfall 2024 Mest lesið Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Sjá meira
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun