Íslensk upprisa dugði ekki til og Bjarki fagnaði gegn löndum sínum Sindri Sverrisson skrifar 17. október 2024 18:47 Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Fredericia, á hliðarlínunni í Ungverjalandi í kvöld. EPA-EFE/Tamas Vasvari Bjarki Már Elísson var eini Íslendingurinn sem fagnaði sigri í kvöld þegar þrjú Íslendingalið voru á ferðinni í Meistaradeild Evrópu í handbolta.
Bjarki skoraði fjögur mörk fyrir Veszprém í ansi naumum sigri gegn Fredericia, liðinu sem Guðmundur Guðmundsson stýrir, í Ungverjalandi, 34-32. Einar Þorsteinn Ólafsson stal boltanum á lokamínútunni og Fredericia, sem mest hafði verið sjö mörkum undir, náði að minnka muninn í eitt mark þegar enn voru rúmar fjörutíu sekúndur en Veszprém skoraði svo lokamark leiksins. Það var einnig mikil spenna í Noregi þar sem Kolstad varð að lokum að sætta sig við eins marks tap, 33-32, gegn Kielce frá Póllandi. Útlitið var slæmt hjá Kolstad eftir tíu mínútur í seinni hálfleik, og staðan 26-20 fyrir Kielce. Þá tóku Íslendingarnir til sinna mála og eftir þrjú mörk frá Sigvalda Guðjónssyni, eitt frá Benedikt Óskarssyni og eitt frá Sveini Jóhannssyni, var munurinn kominn niður í eitt mark. Kolstad tókst svo að jafna og þá voru enn þrettán mínútur til leiksloka. Þessi íslenska upprisa dugði þó ekki til og Kielce fagnaði að lokum eins marks sigri með marki í blálokin. Sigvaldi endaði með fimm mörk en Benedikt og Sveinn með sitt markið hvor. Fredericia og Kolstad eru því áfram neðst í sínum liðum. Kolstad er með tvö stig eftir fimm leiki en Fredericia er án stiga.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Segir nýju mennina hjá Liverpool ekkert hafa getað Enski boltinn Leeds - Tottenham 1-2 | Tottenham upp í annað sæti eftir sigur á Leeds Enski boltinn KR - Afturelding | Allt undir í Vesturbæ Íslenski boltinn Amorim: Ekki að hugsa um að hætta Fótbolti Man Utd - Sunderland | Starf Amorims undir? Enski boltinn Sjáðu glæsimörkin sem skiluðu Bournemouth upp í annað sætið Enski boltinn Kemi tilþrifin | Sjáðu harkalega byltu Arnórs Tristan Körfubolti Sigur í hjarta Muay Thai íþróttarinnar opnar margar dyr Sport Fékk yfir sig vatnsgusu: „Fagna þessu á Gus Gus á morgun“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Fallslagur í Vesturbænum og enski í algleymingi Sport Fleiri fréttir „Það var smá stress og drama“ Afturelding áfram með fullt hús stiga Markaflóð á Akureyri Viktor Gísli og félagar í Barcelona heimsmeistarar félagsliða Tíu íslensk mörk þegar Magdeburg tók bronsið Valur vann stigalausu Stjörnuna Sandra með stórleik í sigri gegn Selfossi Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Elín Klara markahæst hjá toppliðinu Íslendingaliðið í undanúrslit Tilfinningaþrungin stund eftir hörmungar síðustu ára Haukur með flestar stoðsendingar í Þýskalandi Íslendingarnir skutu Ringsted áfram Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Sjá meira