Lífið

Hittast á hlut­lausum stað

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Ben Affleck fyrir utan heimili sitt í Los Angeles.
Ben Affleck fyrir utan heimili sitt í Los Angeles. Bellocqimages/Bauer-Griffin/GC Images

Ben Affleck og Jennifer Lopez róa nú öllum árum að því að ná samkomulagi um skilmála vegna skilnaðar síns. Erlendir slúðurmiðlar keppast nú við að flytja fréttir af því að þau séu farin að hittast á hlutlausum stað ásamt lögfræðingi sínum þar sem þau ræða skilmálana.

Þetta kemur fram í umfjöllun Page Six. Eins og fram hefur komið stefna hjónin á að skilja að borði og sæng. Það er flókið mál þar sem þau skrifuðu ekki undir kaupmála og eru því umtalsverðar tekjur undir.

Fram kemur að lögfræðingurinn Laura Wasser aðstoði hjónin nú við að ná saman um skilmála. Segir að hún sé öllu vön þegar kemur að þessum bransa, Hollywood stjörnur leiti gjarnan til hennar. Þannig hafi hún til að mynda aðstoðað Ben Affleck árið 2018 þegar hann skildi við sína fyrrverandi leikkonuna Jennifer Garner.

Hjónin giftu sig í júlí 2022 án þess að huga að svokölluðum kaupmála. Án hans eiga þau hvort um sig rétt á helmingstekjum hvors annars og hefur vinafólk þeirra beggja áður viðrað áhyggjur sínar af því að skilnaðurinn gæti orðið stormasamur vegna þessa.

Fram kemur í umfjöllun PageSix að umtalsverðir fjármunir séu í húfi en þeir nái þó einungis til 2022 sökum laga í Kaliforníuríki þar sem þau giftu sig. Þannig eigi Affleck til að mynda framleiðslufyrirtækið Artists Equity ásamt Matt Damon sem hafi pungað út stöðugum straumi verkefna undanfarin ár. Þá sé ósagt þær tekjur sem Lopez hafi viðrað að sér en hún hefur meðal annars stofnað kokteilaframleiðandann Delola á þeim tveimur árum sem liðin eru síðan þau giftu sig.


Tengdar fréttir

Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez

Ben Affleck gat ekki haldið höndum sínum út af fyrir sig og lét Jennifer Lopez ekki í friði þegar þau hittust um helgina í bröns í Beverly Hills í Kaliforníu. Þá sáust þau leiðast og kyssa hvert annað, allt þrátt fyrir að standa nú í miðjum skilnaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.