Erlent

Vörpuðu líkum fram af hús­þaki á Vestur­bakkanum

Kjartan Kjartansson skrifar
Ísraelskir hermenn á húsþaki í Qabatiya þar sem fjórir menn voru felldir.
Ísraelskir hermenn á húsþaki í Qabatiya þar sem fjórir menn voru felldir. AP/Majdi Mohammed

Ísraelsher rannsakar nú hóp hermanna sem náðust á myndbandi kasta líkum Palestínumanna fram af húsþaki eftir rassíu á Vesturbakkanum. Meðferðin á líkunum stríðir gegn alþjóðalögum.

Myndbandið var tekið í aðgerðum Ísraelshers í þorpinu Qabatiya nærri Jenín í gær. Eftir að hermennirnir hentu líkunum niður sást jarðýta á vegum hersins fjarlægja þau, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Alþjóðalög kveða á um að herir séu skyldugir til þess að fara með lík fallinna óvina af virðingu.

Í yfirlýsingu frá Ísraelsher kom fram að atvikið væri grafalvarlegt og að framferði hermannanna samræmdist ekki gildum og vætningum hersins til þeirra.

Palestínumenn segja að sjö manns hafi fallið í hernaðaraðgerð Ísraela í Qabatiya. Ísraelsher segist hafa fellt fjóra vígamenn í skotbardaga. Þrír aðrir hafi verið drepnir í drónaárás á bíl. Einn þeirra sem voru felldir hafi leitt ótilgreindan hóp hryðjuverkamanna. Engin vígahópur hefur enn gert tilkalla til þeirra föllnu, að sögn AP-fréttastofunnar.

Sjónarvottur segir BBC að hermenn hafi umkringt byggingu í þorpinu. Fjórir menn hafi flúið upp á þak en þar hafi þeir verið skotnir af leyniskyttum. Eftir að bardaginn var um garð genginn hafi ísraelskir hermenn varpað líkum mannanna niður af þakinu. Þeim hafi svo verið hlaðið í jarðýtuna.

BBC segir að þremur líkum hafi verið kastað niður af þakinu en AP-fréttastofan segir þau hafa verið fjögur og byggir það á frásögn fréttamanns hennar sem var á staðnum og myndböndum sem náðust af atvikinu.

Þrátt fyrir að nærri því ársgömul átök Ísraelshers og Hamas-samtakanna hafi fyrst og fremst farið fram á Gasaströndinni hafa fleiri en 690 Palestínumenn fallið á Vesturbakkanum eftir árás Hamas á Ísrael 7. október. Ísraelsk yfirvöld segja að hertar aðgerðir á Vesturbakkanum séu til þess að fyrirbyggja frekari árásir vígamanna sem hafa þegar orðið 33 Ísraelum að bana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×