Í kaffispjallinu er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Vekjaraklukkan er stillt á klukkan 06:00 á virkum dögum en líkamsklukkan mín er orðin mun spenntari fyrir því að vakna nær klukkan fimm. Ég leyfi líkamsklukkunni yfirleitt að stjórna þar sem þetta virðist skipta hana meira máli en mig. Svo eru morgnar líka bara svo langbestir, þannig að því fyrr sem ég vakna því betra, segi ég bara.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Græja kaffibolla en kaffivélin er ekki vanrækt og er mjög elskað heimilistæki. Sest svo niður og þykist verða ennþá betri í ítölsku með aðstoð Duolingo. Þegar ítölskukennslunni lýkur kíki ég á tölvupóstinn og tek eftir það hring á vefmiðlum. Svo komum við mæðgur okkur út í daginn.“
Þegar þú hugsar aftur til unglingsáranna, hvaða stjörnur koma fyrst upp í hugann hjá þér sem fræga og flotta fólkið í bíó eða sjónvarpi?
„Ég er svolítið kómísk blanda af einstaklingi sem fæddist 107 ára en er samt ungur í anda. Ég hélt vandræðalega mikið upp á Margaret Thatcher því mér fannst hún svo fjári mikill töffari. Hún var nú reyndar hvorki söngkona né leikkona en það eftirminnilegur og öflugur karakter að leikkonur hafa leikið hana.
Fleiri eftirminnilegir frá mínum uppvaxtarárum er Jennifer Aniston, Wu- Tang Clan, Lionel Richie, Mary J Blige, Keith Urban og Julia Roberts.
Svo langaði mig á tímabili alveg svakalega mikið í sleik við George Clooney – en lét aldrei verða að því. Hans missir.

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Verkefnin á mínu borði eru meðal annars tengd sjávarútvegi, stjórnsýslu og snyrtivörum. Öll flóran, ef svo má segja.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
Dagskráin mín er í Calendar í símanum mínum og lífið svolítið skipulagt í kringum það.
Annars er vinnan mín þess eðlis að oft þarf ég að bregðast hratt við og vil meina að heilbrigt grunnskipulag sé af hinu góða, en það sé nauðsynlegt að vera mátulega kærulaus, svo ekki fari allt á hliðina ef farið er út af skipulagsbraut.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Ég er yfirleitt sofnuð klukkan ellefu, stundum fyrr, en afar sjaldan síðar.“