Rafíþróttir

Du­sty og 354 keyrðu sig í gang með geggjaðri viður­eign

Þórarinn Þórarinsson skrifar
GR Verk Deildin í Rocket League byrjaði með látum í gærkvöld þar sem sex lið börðust hart í þremur misjöfnum leikjum.
GR Verk Deildin í Rocket League byrjaði með látum í gærkvöld þar sem sex lið börðust hart í þremur misjöfnum leikjum. Rocket League

GR Verk Deildin í Rocket Leagu­e byrjaði með þremur fjörugum leikjum í fyrstu um­ferð sem hófst með bursti ríkjandi meistarar Þórs á Rafik en spennan náði síðan há­marki í tví­sýnni viður­eign Du­sty og 354.

Þór og Rafik (Rafíþróttadeild Keflavíkur) mættust í fyrstu viðureign tímabilsins og þar sáu Keflvíkingar, sem voru að vinna sig aftur upp í úrvalsdeild, varla til sólar gegn meisturum síðasta tímabils í Þór.

Rafik mátti því sætta sig við 0-3 tap gegn Þórsurum sem var að vísu í takt við spár lýsendanna Snorra Más Vagnsonar og Brimars Jörva Guðmundssonar en Brimar spáði einmitt 3-0 sigri Þórs en Keflavíkurtaug Snorra er sterk og hann hafði veðjað á 3-2 sigri Þórs.

Þá tók við keppni liða OGV og Quick sem endaði einnig 3-0 eftir sannfærandi sigur OGV sem þóttu stimpla sig vel inn í GR Verk Deildina.

Fyrstu umferðinni lauk síðan með 3-2 sigri Dusty á 354 í æsispennandi viðureign tveggja af lífseigustu liðum deildarinnar. Fyrirfram þótti Dusty sigurstranglegri en eins og Brimar og Snorri bentu á þá er lið 354 þekkt fyrir að geta staðið vel upp í hárinu á þeim bestu.

Og sú varð raunin í því aðeins eitt mark skildi að í lokin í „geggjaðri viðureign“, eins og félagarnir í myndverinu í Arena, orðuðu það. Bæði lið spiluðu vel og þetta væri „nákvæmlega það sem Rocket League er og á að vera.“

Þá bættu þeir félagar við að bæði þessi lið ættu að geta veitt Þórsurum verðuga samkeppni.

Staðan í GR Verk Deildinni eftir 1. umferð er þannig að Þór og OGV eru jöfn í 1.-2. Sæti, Dusty í því þriðja en hin liðin þrjú eru enn án stiga, 354 í 4. sæti og Quick og Rafik jöfn í 5.-6.

Næsta umferð fer fram miðvikudaginn 25. september en þá mætast Rafík og 354, Þór og Quick og síðan OGV og Dusty.

Staðan í GR Verk Deildinni í Rocket League eftir eina umferð.

Tengdar fréttir

Ó­venju mörg ný and­lit í Rocket Leagu­e

Móta­stjórinn Stefán Máni Unnars­son segir spennuna í Rocket Leagu­e-sam­fé­laginu mikla nú þegar keppni hefst loks á ný í GR Verk Deildinni annað kvöld. Fjöldi liða sé svipaður og síðast en ó­venju miklar inn­byrðis breytingar á liðunum auki enn frekar á eftir­væntinguna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×