Dregið úr vindi og úrkomu en áfram hætta á skriðuföllum Eiður Þór Árnason skrifar 24. ágúst 2024 08:03 Sérstaklega úrkomusamt hefur verið á Siglufirði. Vísir/Egill Lægðin sem olli leiðindaveðri víða um land í gær er nú skammt vestur af Færeyjum og grynnist smám saman, og því hefur talsvert dregið úr vindi og úrkomu á landinu.
Þetta segir veðurfræðingur á vef Veðurstofu Íslands. Það verði þó áfram norðan- og norðvestanátt í dag, víða 5 til 13 metrar á sekúndu og rigning með köflum, en yfirleitt þurrt sunnan heiða. Hiti frá 6 stigum við norðurströndina upp í 15 stig syðst á landinu. Keimlíkt veður verði á morgun en þó líklega heldur bjartara sunnanlands. Síðdegis fari að draga úr vætu fyrir norðan. Fram kemur á vef Veðurstofunnar að áfram sé hætta á skriðuföllum og vatnavöxtum á norðanverðu landinu en óvissustig almannavarna er í gildi á Norðurlandi eystra. Klukkan 18 í gær hafði verið tilkynnt um grjóthrun og aurskriður utan við Suðureyri í Súgandafirði, í Tungudal innan við Ísafjörð og í Breiðadal í Önundarfirði. Einnig var tilkynnt um tvær skriður á Siglufirði, nokkrar skriður og grjóthrun á Siglufjarðarvegi og tvær skriður í Strandarhrepp, á vegi númer 643. Enginn af þessum skriðuatburðum hefur valdið tjóni á innviðum eða húsum, að sögn Veðurstofunnar. Lokað vegna skriðufalla og grjóthruns Siglufjarðarvegur er lokaður vegna skriðufalla og grjóthruns, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Hjáleiðir eru um Lágheiði (82) eða Öxnadalsheiði (1) og Ólafsfjarðarveg (82). Einnig er Strandavegur lokaður. Líkur eru sagðar á fleiri skriðuföllum á Norðurlandi, Ströndum og norðanverðum Vestfjörðum. Að sögn Vegagerðarinnar er hætta á skriðuföllum á Súðavíkurhlíð og á Snæfjallastrandarveg á Vestfjörðum vegna mikillar úrkomu. Vegfarendur eru beðnir um að aka varlega. Klukkan 18 í gær hafði verið tilkynnt um grjóthrun og aurskriður utan við Suðureyri í Súgandafirði, í Tungudal innan við Ísafjörð og í Breiðadal í Önundarfirði. Einnig var tilkynnt um tvær skriður á Siglufirði, nokkrar skriður og grjóthrun á Siglufjarðarvegi og tvær skriður í Strandarhrepp, á vegi númer 643. Enginn af þessum skriðuatburðum hefur valdið tjóni á innviðum eða húsum, að sögn Veðurstofunnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag: Norðlæg átt 5-13 m/s og væta með köflum, en bjart að mestu sunnan heiða. Hiti 5 til 14 stig, mildast syðst. Á mánudag: Hæg breytileg átt og bjart með köflum, en lítilsháttar væta norðaustanlands fram eftir morgni. Stöku skúrir sunnantil eftir hádegi. Hiti 7 til 14 stig. Á þriðjudag: Norðaustan 5-13 suðaustan- og austantil og lítilsháttar væta, en hægari annars staðar og víða bjartviðri. Hiti 8 til 15 stig yfir daginn, mildast suðvestanlands. Á miðvikudag: Hæg breytileg átt og bjart með köflum, en dálítil rigning syðst. Hiti breytist lítið. Á fimmtudag: Norðlæg eða breytileg átt og bjart að mestu, en þykknar upp norðan- og austanlands um kvöldið. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast á Suðurlandi. Á föstudag: Norðlæg átt og rigning með köflum, en lengst af þurrt suðvestanlands. Heldur kólnandi.
Veður Mest lesið Sex fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys í Hörgársveit Innlent Lítill munur á bitum bitmýs og lúsmýs Innlent Minnst þrettán látnir og tuttugu barna saknað eftir flóð í Texas Erlent Sósíalistum bolað úr Bolholti Innlent „Þá fylgir það börnum í gegnum skólakerfið og út í samfélagið“ Innlent Inga mundaði skófluna við Sóltún Innlent Nýtt bankaráð Seðlabankans skipað Innlent Sambýliskonan sem sá allt og bróðirinn sem þekkti ekki fjölskylduna Innlent Skellt upp úr í þingsal þegar ráðherra reyndi að mynda hjarta Innlent Sýknaður af kæru Samtakanna 78 um hatursorðræðu Innlent Fleiri fréttir Hægviðri, hafgola og hiti að átján stigum Skúrir á víð og dreif Rigning með köflum sunnan- og vestanlands Skúrir víða um land og lægð nálgast Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Skýjað og skúrir en ekki of kalt Allt að sautján stiga hiti í dag Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Óveðrinu slotar en áfram hætta á skriðuföllum Sjá meira