Lífið

Jennifer Lopez sækir um skilnað

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Jennifer Lopez og Ben Affleck á frumsýningu kvikmyndarinnar AIR sem Affleck leikstýrði og lék í.
Jennifer Lopez og Ben Affleck á frumsýningu kvikmyndarinnar AIR sem Affleck leikstýrði og lék í. EPA/ETIENNE LAURENT

Mikið hefur verið rætt og ritað um stormasamt samband Hollywood-stjarnanna Jennifer Lopez og Ben Affleck undanfarið. Þrálátur orðrómur hefur verið uppi um margra vikna skeið um að sambandi þeirra sé svo gott sem lokið. Nú virðist sem að sá orðrómur hafi verið staðfestur.

Jennifer Lopez og Ben Affleck giftu sig fyrir tveimur árum eftir að hafa endurnýjað kynnin tuttugu árum eftir að hafa verið síðast saman. Nú greinir bandaríski miðillinn TMZ frá því að Jennifer Lopez hafi sótt um skilnað. Í skilnaðarpappírunum sen miðillinn hefur undir höndum er dagsetning skilnaðar sett fram sem 26. apríl þessa árs.

Það vekur athygli að í dag séu tvö ár síðan hjónin héldu stórfenglega brúðkaupsveislu í Georgíu mánuði eftir sjálfan giftingardaginn. Þau hafa ekki sést saman opinberlega í langan tíma, síðan í mars, og orðrómar um að þau væru skilin að borði og sæng farið eins og eldur um sinu um netið.

Affleck og Lopez fóru að stinga saman nefjum á nýjan leik í júli ársins 2021 en þau áttu í frægu ástarsambandi árin 2002 til 2004.

Parið á engin börn saman en TMZ hefur eftir heimildamanni að það hafi engin kaupmáli verið gerður við giftinguna. Þau hafi verið að reyna að komast að samkomulagi mánuðum saman en það hafi reynst erfitt vegna þess að þau neita að tala saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.