Lægð yfir landinu og skúradembur norðan- og austantil Lovísa Arnardóttir skrifar 15. ágúst 2024 07:26 Áfram má gera ráð fyrir rigningu í dag. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Alldjúp og hægfara lægð er nú yfir norðanverðu landinu. Henni fylgir vestlæg átt, kaldi eða stinningskaldi og rigning víða um land. Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar segir að það dragi úr vætu norðvestantil þegar líður á daginn.
Á Norðaustur- og Austurlandi verði vindur hægari og þurrt að kalla fram eftir morgni. Síðdegis er útlit fyrir öflugar skúradembur á þeim slóðum. Hiti verður líklega á bilinu 8 til 15 stig, hlýjast um landið norðaustanvert. Á morgun verður svo norðan og norðvestan gola eða kaldi og súld eða dálítil rigning. Það léttir þó smám saman til á sunnanverðu landinu, víða bjart þar eftir hádegi en líkur á stöku síðdegisskúrum. Hiti frá 7 stigum við norðurströndina, upp í 16 stig sunnanlands. Um helgina er svo útlit fyrir áframhaldandi norðan- og norðvestanátt með vætusömu og köldu veðri um landið norðanvert, en bjartara sunnan heiða og mildara yfir daginn þó búast megi við einhverjum skúrum. Á vef Vegagerðar má sjá að greiðfært er um landið allt. Gott er að fylgjast með færð og aðstæðum á vegum á vef þeirra og veðri á vef Veðurstofunnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðan og norðvestan 5-10 m/s og dálítil rigning eða súld. Léttir smám saman til á sunnanverðu landinu, en líkur á stöku síðdegisskúrum þar. Hiti frá 7 stigum við norðurströndina, upp í 15 stig sunnanlands. Á laugardag: Norðan 5-13 vestantil, annars hægari vindur. Rigning eða súld með köflum, en úrkomuminna á Vesturlandi. Hiti 5 til 13 stig, svalast norðvestanlands. Á sunnudag og mánudag: Norðvestan og norðan 5-13 og lengst af rigning norðanlands. Bjart með köflum sunnantil, en líkur á stöku skúrum. Hiti 5 til 12 stig, mildast syðst. Á þriðjudag: Vestlæg átt og dálítil væta, en þurrt að kalla á Suðurlandi. Hiti víða 8 til 13 stig að deginum. Á miðvikudag: Norðlæg eða breytileg átt og dálitlar skúrir, en yfirleitt þurrt vestantil. Heldur kólnandi.
Veður Færð á vegum Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Sjá meira