Helgi Fróði seldur til Helmond Sport Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. ágúst 2024 09:16 Helgi Fróði Ingason í Evrópuleik gegn Linfield fyrr í sumar. vísir/diego Stjarnan hefur selt hinn átján ára Helga Fróða Ingason til hollenska B-deildarliðsins Helmond Sport.
Á mánudaginn greindi Guðmundur Benediktsson, stjórnandi Stúkunnar, frá því að Helgi Fróði væri á leið í hollensku B-deildina. Ekki kom þó fram hvaða lið væri að kaupa hann. Stjarnan hefur nú staðfest að Helgi Fróði hafi verið seldur til Helmond Sport sem endaði í 11. sæti hollensku B-deildarinnar á síðasta tímabili. „Í tilviki Helga Fróða var mikill áhugi frá félögum í Hollandi og mörg tilboð verið á borðinu í allt sumar og við erum gríðarlega ánægð með þegar leikmenn og fjölskyldur treysta því ferli sem við höfum unnið eftir. Um leið og ég óska nafna mínum til hamingju þá er ég sannfærður að aðrir leikmenn félagsins munu stíga enn frekar upp,“ segir Helgi Hrannarr Jónsson, formaður meistaraflokksráðs karla hjá Stjörnunni, í yfirlýsingu frá félaginu. Helgi Fróði lék sautján leiki með Stjörnunni í Bestu deildinni í sumar, skoraði tvö mörk og lagði upp tvö. Hann hefur alls leikið þrjátíu leiki í efstu deild. Þá á hann sex leiki með U-19 ára landsliðinu á ferilskránni. Stjarnan er í 7. sæti Bestu deildarinnar með 26 stig eftir átján leiki.
Besta deild karla Stjarnan Hollenski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti „Guð morning!“ Enski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“