Spánverjar snéru taflinu við og leika til úrslita Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 5. ágúst 2024 18:08 Fermin Lopez skoraði og lagði upp í dag. Eurasia Sport Images/Getty Images Spánverjar eru komnir í úrslit Ólympíuleikanna í fótbolta eftir 2-1 endurkomusigur gegn Marokkó í dag.
Það voru Marokkómenn sem voru fyrri til að brjóta ísinn þegar Soufiane Rahimi skoraði af miklu öryggi af vítapunktinum á 37. mínútu eftir að brotið hafði verið á Amir Richardson innan vítateigs. Reyndist það eina mark fyrri hálfleiksins og staðan því 1-0 þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja. Spænska liðið mætti þó ákveðið til leiks í síðari hálfleik og uppskar jöfnunarmark á 66. mínútu þegar Fermin Lopez kom boltanum í netið. Það stefndi því lengi vel í það að grípa þyrfti til framlengingar, en Lopez var aftur á ferðinni fimm mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma þegar hann fann Juanlu Sanchez inni á vítateig og Sanchez kláraði vel framhjá Munir í marokkóska markinu. Niðurstaðan því 2-1 sigur Spánverja sem eru á leið í úrslit, en Marokkó þarf að sætta sig við að leika um brons. Síðar í kvöld kemur svo í ljós hvort það verði Frakkar eða Egyptar sem fylgja Spánverjum í úrslit.
Ólympíuleikar 2024 í París Mest lesið Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Þurfa ekki að greiða Eriksen laun Fótbolti „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Íslenski boltinn Heimsmeistarinn óvænt úr leik í fyrstu umferð Sport Rekstrarstjóri FIFA á förum vegna Infantino Fótbolti Valinn í stærstu liðakeppni heims dögum eftir sigurinn Golf Sjáðu glæsimark Hafrúnar Rakel í Danmörku Fótbolti Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Íslenski boltinn Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Íslenski boltinn „Kýs að líta á glasið hálffullt“ Fótbolti Fleiri fréttir Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Þurfa ekki að greiða Eriksen laun Sjáðu glæsimark Hafrúnar Rakel í Danmörku Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Rekstrarstjóri FIFA á förum vegna Infantino „Fórum yfir hlutina af yfirvegun í hálfleik“ „Kýs að líta á glasið hálffullt“ Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Fernandes ekki á förum Hársbreidd frá endurkomu gegn toppliðinu Uppgjörið: Fram - Stjarnan | Framarar nálgast annað sætið Pina nú verðmætasta knattspyrnukona heims Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Komust ekki inn á mótið en unnu svo titilinn Skipti tennisskónum út fyrir takkaskó og skoraði tvö í fyrsta leik Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Sjóðheit Ída Marín kveður FH Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Jón Daði hættur í fótbolta: „Á endanum stend ég eftir með ekkert nema þakklæti“ Bjarni varð eftir í Svíþjóð og er á förum frá Val Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Sveindís missti af prinsessuleiknum Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Sjá meira