Lífið

Ekki meira en bara vinir

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Brynja Bjarna og Arnar Gauti njóta lífsins saman á Króatíu.
Brynja Bjarna og Arnar Gauti njóta lífsins saman á Króatíu. Instagram stories @brynjabjarnaa

Áhrifavaldarnir Arnar Gauti, betur þekktur sem Lil Curly, og Brynja Bjarna Anderiman hafa verið áberandi á samfélagsmiðlum hvors annars undanfarið og virðast þau nánast óaðskiljanleg. Þau eyddu góðum tíma saman í sólinni í Króatíu og eru nýkomin heim. 

Tvíeykið hefur fengið margar fyrirspurnir um hvort þau séu par en svo er ekki. Blaðamaður heyrði í Arnari Gauta sem segir að þau Brynja séu bara bestu vinir sem eyða miklum tíma saman. 

@lilcurlyhaha sömmer i essu @Brynja_B🪩 ♬ Kung Fu Fighting Jersey Fazo - fazobeats🦹🏽

„Við erum ekki par. En við erum alltaf saman, við erum bestu vinir,“ segir Arnar Gauti. 

Brynja Bjarna í bol með áletrun lagsins Ekki hafa áhyggjur sem Arnar Gauti var að gefa út.Aðsend

Bæði hafa þau notið mikilla vinsælda á samfélagsmiðlinum TikTok og fékk Arnar Gauti Brynju meðal annars með sér í lið við að búa til dans við nýja lagið hans Engar áhyggjur. 

@lilcurlyhaha Ekki hafa áhyggjur - kemur ut i kvöld @Brynja_B🪩 @Egill Breki ♬ Ekki Hafa Áhyggjur ft. Luigi - LIL CURLY

Tengdar fréttir

Nýtur lífsins áhyggjulaus í áhrifavaldaferð í Króatíu

„Þetta snýst um að hafa ekki áhyggjur, þetta græjast,“ segir áhrifavaldurinn og athafnamaðurinn Arnar Gauti, jafnan þekktur sem Lil Curly. Hann var að senda frá sér lagið Ekki hafa áhyggjur og nýtur sömuleiðis lífsins áhyggjulaus í hópi íslenskra stjarna í Króatíu um þessar mundir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.