Geta ekki sagt hvort Óskari hafi verið boðið starfið eða ekki Jón Þór Stefánsson og Vésteinn Örn Pétursson skrifa 12. júlí 2024 15:08 Óskar Steinn er allt annað en sáttur við framvindu mála hjá Hafnarfjarðarbæ, og segir bæinn ekki geta afturkallað ráðningu hans án nokkurra eftirmála. Hafnafjarðarbær segist ekki geta tjáð sig um mál einstaka starfsmanna, og því ekki geta staðfest eða hafnað því að Óskari Steini Ómarssyni hafi verið boðið starf deildarstjóra í grunnskóla í bænum. Sjálfur segir Óskar að svo hafi verið, en ráðningin dregið til baka. Hann telur að pólitísk afskipti hafi spilað inn í.
Í svari við fyrirspurn fréttastofu, um hvort pólitísk afskipti hafi haft áhrif á ráðningu Óskars, segir Hafnafjarðarbær að áhersla bæjarins sé að fylgja vönduðum stjórnsýsluháttum. „Markmiðið er ávallt að standa faglega að auglýsingum, ráðningum og mannauðsmálum innan sveitarfélagsins og á því er engin undantekning gerð. Áhersla er lögð á að ráða hæfasta fólkið hverju sinni og vönduðum stjórnsýsluháttum fylgt við allar ráðningar.“ „Það var búið að ráða mig“ Óskar sagði í samtali við fréttastofu í gær að hann hafi sótt um stöðu deildarstjóra tómstundamiðstöðvar Hraunvallaskóla. Hann hafi fengið starfið og verið tilkynnt að ráðningarsamningur myndi berast rafrænt innan tíðar. Skömmu síðar hafi Óskar tjáð sig opinberlega um óskylt mál, ákvörðun meirihlutans í Hafnarfirði að loka Hamrinum, ungmennahús fyrir fólk á aldrinum 16 til 25 ára. Hann gagnrýndi ákvörðunina. Daginn eftir að hann lét þessa skoðun sína í ljós var honum tilkynnt af stjórnendum Hraunvallaskóla að í ljós hefði komið að hann stæðist ekki menntunarkröfur til starfsins, og því þyrfti að falla frá ráðningu hans og auglýsa starfið upp á nýtt. „Það var búið að ráða mig. Öll gögn um mig voru komin inn í kerfið hjá bænum, að ég sé að taka við sem deildarstjóri tómstundarmiðstöðvar,“ sagði Óskar, sem benti á meginregluna um að munnlegir samningar séu jafngildir skriflegum. Líkt og áður segir vill hann meina að um pólitíska ákvörðun hafi verið að ræða, vegna skrifa sinna um Hamarinn. Honum var tjáð að ákvörðunin hafi verið tekin vegna þess að hann stæðist ekki menntunarkröfur. „Það blasir við fyrir mér. Ég sé ekki að sú skýring sem þau gefa geti staðist. Það eru starfandi í dag deildarstjórar í tómstundarmiðstöðvum, nákvæmlega sömu stöðu, sem eru með menntun í allt öðru en tómsundar- eða menntunarfræði.“ Fordæmi fyrir undantekningum Í svari við fyrirspurn fréttastofu segir Hafnarfjarðarbær að það sé rétt hjá Óskari að í skólakerfinu í bænum starfi fólk sem hafi ekki nákvæmlega þá menntun sem krafist er í auglýsingu. „Viðmiðið er alltaf viðeigandi menntun en fordæmi eru fyrir undantekningum þannig að hægt sé að manna lausar stöður. Stífari kröfur ríkja þegar um stjórnendastöður er að ræða og alltaf leitast við að ráða aðila sem uppfyllir hæfniskröfurnar. Stundum þarf að falla frá ráðningu og auglýsa aftur ef ekki sækir um aðili sem uppfylli hæfniskröfur.“
Hafnarfjörður Skóla- og menntamál Grunnskólar Vinnumarkaður Mest lesið Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Innlent Telur fleiri falla á nýju bílprófi Innlent Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Erlent Arnar Þór á leið í nýjan flokk Innlent Mamma bara María þegar mæðgurnar eru saman á vakt Innlent Diddy á sjálfsmorðsvakt Erlent Senda svifsprengjur fyrir F-16 Erlent „Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“ Innlent Anton Sveinn McKee til liðs við Miðflokkinn Innlent Með banvænan sjúkdóm í stöðugri baráttu við Kópavogsbæ Innlent Fleiri fréttir Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Lögreglumenn í veikindaleyfi vegna þungra mála Með banvænan sjúkdóm í stöðugri baráttu við Kópavogsbæ Mikill reykur eftir að gleymdist að slökkva á kerti Bið eftir NPA-þjónustu og eftirspurn eftir sæðisgjöfum Arnar Þór á leið í nýjan flokk Anton Sveinn McKee til liðs við Miðflokkinn „Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“ Ekkert sem bendir til þess að sakborningum fjölgi Lífræni dagurinn er í dag Bein útsending: Heilabilun rædd á Alzheimerdegi Ekkert bendi til að sakborningum muni fjölga Telur fleiri falla á nýju bílprófi Maður margra storma íhugar stöðu sína Byssan reyndist leikfang Mamma bara María þegar mæðgurnar eru saman á vakt Hvers vegna að fella ísbirni? Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Bræður heiðraðir á 100 ára starfsafmæli: „Einfalt, þægilegt og engin keppni“ Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Myndgreiningarkerfi geti hjálpað til við að stoppa af óprúttna aðila Framboð Baldurs þurfti að endurgreiða styrki sem fóru yfir hámark Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Áfram í varðhaldi fyrir að ræna og hóta ungmennum Fjölskylda flugmanns vill að lögregla rannsaki andlát hans Sýndi lögreglu löngutöng og var ekinn út af Svanhildur afhenti Biden trúnaðarbréf Loka almenningsbókasafninu og leita til Akureyrar Búið að taka sýni úr ungu birnunni Vinna málið saman og nýta greinargerð vegna fyrri umsóknar Sjá meira
Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Erlent
Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Erlent