ÍR og Grindavík sendu skýr skilaboð Sindri Sverrisson skrifar 4. júlí 2024 21:34 Adam Árni Róbertsson kom til Grindavíkur í vetur og skoraði sigurmarkið gegn Njarðvík í kvöld. UMFG ÍR-ingar unnu frábæran 3-0 sigur á Aftureldingu í kvöld, og komu sér upp fyrir Mosfellinga í 5. sæti, á meðan að Grindavík vann sætan 1-0 útisigur á liðinu í 2. sæti, Njarðvík, í Lengjudeild karla í fótbolta.
ÍR komst yfir gegn Aftureldingu í Breiðholtinu í kvöld með sjálfsmarki Arnars Daða Jóhannessonar, markvarðar Aftureldingar, á 59. mínútu. Skömmu síðar skoraði Bragi Karl Bjarkason sitt sjöunda mark í deildinni en hann er nú markahæstur ásamt Fjölnismanninum Mána Austmann Hilmarssyni. Kristján Atli Marteinsson skoraði svo þriðja mark ÍR sem nú hefur unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum, og gert eitt jafntefli. Nýliðar ÍR eru því með 16 stig líkt og ÍBV og Grindavík, næst á eftir Njarðvík sem er með 20 stig í 2. sæti. Á toppnum er Fjölnir með 24 stig en aðeins eitt lið fer beint upp um deild og liðin í 2.-5. sæti fara í umspil um seinna lausa sætið í efstu deild. Afturelding er með 14 stig, núna í 6. sæti. Í Njarðvík skoraði Adam Árni Róbertsson sigurmark Grindavíkur á 83. mínútu. Grindavík hefur því unnið fjóra af síðustu fimm leikjum sínum, eftir þjálfaraskipti, og á leik til góða á flest hinna liðanna. Elleftu umferðinni lýkur á laugardag þegar ÍBV mætir Leikni og Þróttur tekur á móti Dalvík/Reyni.
Lengjudeild karla Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“