Þýskaland gat með sigri gegn Sviss í kvöld klárað A-riðilinn með fullt hús stig en liðið var þegar öruggt áfram fyrir leikinn í kvöld.
Lengi framan af leik var útlit fyrir að Sviss myndi klára leikinn en Dan Ndoye kom Sviss yfir með marki á 28. mínútu. Þjóðverjar voru aftur á móti mun meira með boltann og sköpuðu sér urmul af færum.
Eitthvað varð undan að láta og á 93. skoraði Niclas Füllkrug jöfnunarmark eftir undirbúning frá David Raum.
Þýskaland klárar A-riðil því nokkuð örugglega í fyrsta sæti með sjö sti og Sviss er sömuleiðis öruggt með 2. sætið með fimm stig og bæði lið komin áfram í 16-liða úrslit.