Lífið

Einir yngstu garð­yrkju­bændur landsins eru í Norð­linga­holti

Bjarki Sigurðsson skrifar
Krökkunum finnst virkilega gaman að mæta í gróðurhúsið.
Krökkunum finnst virkilega gaman að mæta í gróðurhúsið. Vísir/Sigurjón

Á leikskólanum Rauðhóli í Norðlingaholti rækta börnin ýmiskonar grænmeti, kryddjurtir og plöntur í nýju gróðurhúsi. Það sem er ræktað endar á diskum barnanna, sem finnst flestum kálið vera best.

Í gróðurhúsinu er ræktað kál, tómatar, baunir, steinselja og fleira. Börnin sáu um að gróðursetja flestar plönturnar, með aðstoð starfsmanna.

„Við erum að læra allskonar, meðal annars að bera virðingu fyrir náttúrunni, hvoru öðru og líka hvaðan maturinn kemur. Það eru allskonar markmið sem koma inn í svona vinnu í gróðurhúsi,“ segir Ingveldur Ævarsdóttir, leikskólakennari á Rauðhóli.

Ingveldur Ævarsdóttir er leikskólakennari á Rauðhóli.Vísir/Sigurjón

„Við erum að rækta kál og tómata. Svo erum við líka að rækta radísur,“ segir Embla Máney sem var á fullu í gróðurhúsinu þegar fréttastofu bar að garði. 

Hvað er best að borða af þessu?

„Tómata.“

Krakkarnir sjá um að vökva í gróðurhúsinu.Vísir/Sigurjón

Tómatarnir eru þó ekki vinsælastir hjá öllum.

Viljið þið segja mér hvað er best?

„Kál,“ heyrðist nánast í kór hjá flestum krökkunum.

Finnst öllum kálið best?

„Tómatur,“ sagði einn sem var ekki sammála hinum.

En radísurnar, eru þær ekki góðar?

„Nei, þær eru sterkar,“ heyrðist aftast í hópnum. 

Krakkarnir sjá um að vökva í gróðurhúsinu á hverjum degi, og það er margt sem þarf að huga að.

„Þetta er töluvert mikil vinna. En það er áhuginn hjá börnunum og gleðin sem skapast í kringum þetta sem heldur okkur við efnið. Ég tala nú ekki um þegar við förum út í gróðurhús, náum okkur í salat og borðum það í hádeginu. Þá eru þau svo stolt af því að þau settu niður þessi litlu fræ fyrir nokkrum mánuðum síðan og eru síðan bara að borða það í hádegismat,“ segir Aldís Björk Óskarsdóttir, meistaranemi í leikskólakennarafræðum, sem starfar á Rauðhóli.

Aldís Björk Óskarsdóttir, meistaranemi í leikskólakennarafræðum.Vísir/Sigurjón

Og í gulri veðurviðvörun þarf að syngja og óska eftir því að sólin mæti á svæðið. Krakkarnir sungu Sól, sól skín á mig fyrir fréttamann, vonandi að lagið geri sitt. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.