Æsandi bíltúr norður í land Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. maí 2024 11:17 Steinunn Ólína, Ásdís Rán og Ástþór Magnússon áður en sest var upp í bíl. Ásdís Rán Gunnarsdóttir, Ástþór Magnússon og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir ætla að bruna sem leið liggur norður til Akureyrar í dag þar sem forsetakvöldvaka fer fram á Græna hattinum. Von er á æsandi bíltúr að sögn Steinunnar. Auk þeirra þriggja mæta Helga Þórisdóttir og Viktor Traustason á samkomustað þeirra Akureyringa í göngugötunni. Auglýst er eftir gítarleikara.
Ásdís Rán og Steinunn Ólína ræddu ferðalagið fram undan í Bítinu á morgun en snertu þó fyrst á galakvöldi helgarinnar þar sem Ásdís Rán bauð meðframjóðendum sínum á rauða dregilinn. „Fannst ykkur þetta ekki flott? Mig langaði að gleðja alla frambjóðendurnar. Það hefur verið svo mikið að gera hjá öllum, allir með þétta dagskrá. Ég held við finnum öll að það hefur vantað móment þar sem maður getur notið þess að vera í framboði, klætt sig upp og tekið svolítið forsetapartý. Það þarf að þjálfa þetta fólk í að koma fram eins og forseti svo ég tók smá kennslustund í leiðinni,“ sagði Ásdís Rán í Bítinu. Það sem hefði falist í kennslustundinni væri að klæða sig upp, hafa sig til og vera glæsileg á rauða dreglinum. „Það mættu allir nema Jón Gnarr sem var úti á landi, Arnar Þór var einhvers staðar og svo kom Felix í staðinn fyrir Baldur.“ Ásdís Rán flutti ræðu og Steinunn Ólína söng fyrir fólkið. Steinunn Ólína söng lagið Besame Mucho með glæsibrag. Silla Páls „Hún var svo ótrúlega sniðug og góð að hún fór upp á svið og söng. Ég vissi ekki að hún myndi syngja svona ofboðslega vel en þetta var bara með því allra flottasta sem ég hef heyrt.“ Steinunn Ólína var ánægð með framtak Ísdrottningarinnar. „Veistu, þetta var svo glæsilegt og rausnarlegt hjá henni Ásdísi. Hún gengur þarna fram með góðu fordæmi. Svo elskuleg að bjóða okkur öllum.“ Ásdís segist hafa heyrt að fólk sé hissa á að hún hafi boðið meðframbjóðendum til veislu. „Það er ekkert að því. Ég keppi ekki við fólk. Við erum öll við sjálf. Eina manneskjan sem ég er að keppa við er ég sjálf.“ Sterk liðsheild Steinunn lýsir góðri liðsheild meðal frambjóðenda og snýr sér að verkefni dagsins. „Til dæmis erum við Meistaradeildin Ásdís, ég, Ástþór Magnússon, Viktor og hún Helga - við erum að standa fyrir framboðsfundi á Græna hattinum á Akureyri klukkan 20 í kvöld. Það sem er mest æsandi af öllu er að við Ástþór og Ásdís verðum saman í bíl í dag. Ég get ekki beðið.“ Ásdís hvetur fólk til að fylgjast með þeim á samfélagsmiðlum. Ástþór og Ásdís brostu sínu breiðasta í galaveislunni.Silla Páls „Það verða beinar útsendingar úr símanum mínum, símanum hjá Steinunni og hinum líka eflaust,“ segir Ásdís. „Þetta verður það eina sem verður í fréttum í dag nema það fari að gjósa,“ bætir Steinunn við. Streymi verður á persónulegri Facebook-síðu Steinunnar um eittleytið í dag sem hún hvetur fólk til að missa ekki af. Vilja banna skoðanakannanir og Domino's pítsur Talið berst aftur að galapartýi Ásdísar Ránar. Reyndar ekki partýi. „Þetta var ekki partý, þetta var glæsileg forsetaveisla. Ein sú glæsilegasta sem hefur verið gerð á Íslandi fyrr en síðar. Já, það má búast við svona glæsilegum veislum á Bessastöðum. Það verður stanslaust streymi til landsins af alls konar þjóðhöfðingum og viðskiptafólki þegar ég verð komin til valda á Bessastöðum.“ Steinunn upplýsir að Ásdís hafi haldið æðislega, fallega og skemmtilega ræðu. „Svo er hún óborganlega fyndin.“ Ástþór Magnússon flutti ræðu í veislu Ásdísar.Silla Páls Steinunn Ólína vísar til þess að í kappræðum forsetaefna á Stöð 2 var sex efstu boðið. „Við í Meistaradeildinni vorum ekki vitund móðguð.. Ásdís sagði í gríni í ræðunni að þegar hún yrði forseti myndi hún banna skoðanakannanir og banna Heimi Má Pétursson. Ég hef hins vegar gefið það kosningaloforð að banna Dominos pítsur því ég held að þær séu svo vondar fyrir okkur,“ segir Steinunn og hlær. Fram undan er bíltúr norður á Akureyri þangað sem þau ætla að vera mætt klukkan 19:30. Forsetakvöldið með Meistaradeildinni hefst klukkan 20. Steinunn Ólína auglýsir eftir gítarleikara til að mæta á svæðið og spila undir hópsöng. Steinunn Ólína segir í samtali við Vísi að viðburðurinn í kvöld komi til af því að litlu framboðin styðji hvert annað til að kynna sig. „Þetta er falleg samvinna. Þetta eru ekki framboð með fjársterka aðila. Við gerum þetta saman eins og fólk á að gera.“
Forsetakosningar 2024 Grín og gaman Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Sjá meira