Lífið

Fengið gjöf á hverju ári frá Tom Cruise síðan 2005

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Dakota Fanning og Tom Cruise í hlutverkum sínum í War of the Worlds.
Dakota Fanning og Tom Cruise í hlutverkum sínum í War of the Worlds. Paramount Pictures

Bandaríska leikkonan Dakota Fanning segist hafa fengið afmælisgjöf á hverju einasta ári frá kollega sínum Tom Cruise allt frá því að þau léku saman í kvikmyndinni War of the Worlds árið 2005.

Dakota segir frá þessu í innslagi veftímaritsins Harper's Bazaar. Þar er hún ásamt breska leikaranum Andrew Scott en þau leika bæði í Netflix þáttunum Ripley sem eru nýkomnir út. 

Hún segir að hún hafi verið ellefu ára gömul og fengið sinn fyrsta farsíma frá Cruise. Það hafi verið Motorola Razr en Fanning viðurkennir að hún hafi ekki haft neinn til að hringja í á þessum tíma. 

„Tom gefur mér afmælisgjöf á hverju einasta ári og hefur gert síðan þá,“ segir Dakota. Í War of the Worlds ráðast geimverur á jörðina og þarf persóna Tom Cruise að hafa sig allan við til að halda sér og dóttur sinni, sem leikin er af Dakota Fanning, á lífi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.