Magnað mark Vigdísar dugði ekki í lokaleiknum Sindri Sverrisson skrifar 9. apríl 2024 12:37 Vigdís Lilja Kristjánsdóttir skoraði glæsilegt mark í dag, eftir að hafa farið framhjá þremur varnarmönnum Austurríkis. vísir/Hulda Margrét Íslenska U19-landslið kvenna í fótbolta varð að sætta sig við 3-2 tap gegn Austurríki í Króatíu í dag, í lokaleik sínum í undankeppni Evrópumótsins.
Ísland endaði því í 3. sæti síns riðils, á þessu seinna stigi undankeppninnar, en fyrir leik var ljóst að Austurríki og Ísland gætu ekki komist upp fyrir efsta liðið, Írland, sem fer á EM. Heimakonur í Króatíu enduðu neðstar án stiga. Austurríki komst tvívegis yfir í fyrri hálfleiknum í dag en í bæði skiptin tókst Íslandi að jafna metin. Fyrra mark íslenska liðsins kom eftir sérstaklega glæsilegt einstaklingsframtak Blikans Vigdísar Lilju Kristjánsdóttur, sem fór framhjá þremur varnarmönnum áður en hún skoraði á 33. mínútu. Austurríki komst aftur yfir eftir hornspyrnu rétt fyrir hálfleik, en þá var enn tími fyrir Ísland til að jafna metin og það gerði fyrirliðinn Bergdís Sveinsdóttir með síðustu spyrnu fyrri hálfleiks, eftir góða pressu íslenska liðsins. Austurríki tryggði sér hins vegar sigur því lokamarkið kom frá Almedina Sisic á 54. mínútu. A-landslið kvenna verður svo á ferðinni í Þýskalandi síðar í dag, eða klukkan 16:10, og spilar þar við heimakonur í öðrum leik sínum í undankeppni EM.
Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Sjá meira