Ísland ekki í neðsta flokki fyrir EM Sindri Sverrisson skrifar 8. apríl 2024 13:19 Íslenska landsliðið fagnaði EM-sætinu vel og innilega í gær. vísir/Anton Í fyrsta skipti í tólf ár verður nafn Íslands í skálinni þegar dregið verður í riðla Evrópumóts kvenna í handbolta eftir tíu daga. Ísland er í þriðja styrkleikaflokki og því í fyrsta sinn ekki í neðsta flokknum.
Hér að neðan má sjá styrkleikaflokkana: Styrkleikaflokkarnir á EM. Ísland er í þriðja flokki ásamt Slóveníu, Króatíu, Póllandi, Serbíu og Norður-MakedóníuEHF Stelpurnar okkar tryggðu sig endanlega inn á EM í gær þegar þær unnu Færeyjar á Ásvöllum, 24-20. Ísland endaði því í 2. sæti síns undanriðils, á eftir Svíum sem unnu alla sína leiki. Færeyingar náðu hins vegar einnig inn á EM, sem eitt af fjórum liðum með bestan árangur í 3. sæti í undanriðlunum átta. EM hefst 28. nóvember og stendur yfir til 15. desember. Mótið hefur verið stækkað og í fyrsta sinn taka 24 þjóðir þátt, en spilað verður í Austurríki, Sviss og Ungverjalandi. Á fimmtudaginn í næstu viku verður dregið í sex fjögurra liða riðla, og komast tvö efstu liðin úr hverjum riðli áfram í milliriðla. Búið að raða sex liðum í riðla Ísland er eins og fyrr segir í þriðja styrkleikaflokki af fjórum, og getur ekki mætt öðrum liðum í þeim flokki. Búið er að ákveða að Ungverjaland verði í A-riðli, Svartfjallaland í B-riðli, Frakkland í C-riðli, Sviss í D-riðli, Austurríki í E-riðli og Þýskaland í F-riðli. Ísland hefur tvívegis áður keppt á EM en það var árin 2010 og 2012. Í bæði skiptin var liðið í neðsta styrkleikaflokki áður en dregið var í riðla, en hafa ber í huga að þá voru þátttökuþjóðir 16 en ekki 24. Ísland hafnaði í 15. sæti á báðum mótum. EM í ár verður annað stórmót stelpnanna okkar í röð því þær urðu í 25. sæti á HM í desember síðastliðnum, með því að vinna Forsetabikarinn.
Landslið kvenna í handbolta Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira