Kólnar aftur í kvöld og spáð stormi um helgina Atli Ísleifsson skrifar 5. apríl 2024 06:55 Um helgina er spáð norðvestan hvassviðri eða stormi. Él á norðan- og austanverðu landinu á laugardag og bætir í ofankomu þar á sunndag. Vísir/Vilhelm Lægðin sem nú er að finna vestur af landinu og bar með sér snjókomubakka yfir vestanvert landið, hreyfist hægt og bítandi til vesturs og léttir í kjölfarið smám saman til. Í öðrum landshlutum er bjart með köflum en stöku él eru á víð og dreif.
Frá þessu segir á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að frost verði null til sjö stig að deginum en rétt yfir frostmarki sunnanlands. Í kvöld muni svo kólna aftur, verða fimm til fimmtán stig í nótt og kaldast inn til landsins fyrir norðan. „Um helgina er spáð norðvestan hvassviðri eða stormi. Él á norðan- og austanverðu landinu á laugardag og bætir í ofankomu þar á sunndag. Bjart að mestu suðvestantil. Hlýnar heldur á sunnudag, hiti 0 til 5 stig sunnanlands en um eða undir frostmarki fyrir norðan og austan. Minnkandi norðaustanátt á mánudag. Áfram él á norðan- og austanverðu landinu og bjart með köflum suðvestanlands. Hiti breytist lítið. Aðfaranótt þriðjudags kemur smálægð upp að landinu sunnanverðu og veldur óvissu í spám. Útlit er fyrir austlægar áttir og dálitla rigningu eða slyddu sunnan- og vestanlands en þurrt að mestu norðaustantil. Frost fyrir norðan og austan, en frostlaust sunnan- og suðvestantil,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Norðaustan 10-18 m/s, en 15-23 undir kvöld, hvassast suðaustantil á landinu. Dálítil él norðan- og austanlands, en bjartviðri á Suður- og Vesturlandi. Frost 0 til 8 stig, en frostlaust við suðurströndina yfir daginn. Á sunnudag: Norðan og norðaustan 15-23 og snjókoma með köflum, en þurrt suðvestantil. Víða vægt frost en hiti 1 til 6 stig sunnanlands að deginum. Á mánudag: Norðan 10-18 og snjókoma á norðanverðu landinu en slydda við austurströndina. Lengst af þurrt sunnantil. Hiti víða um frostmark, en allt að 5 stig syðst. Á þriðjudag: Norðaustan- og austanátt. Snjókoma með köflum og hiti um frostmark, en slydda eða rigning á sunnanverðu landinu með hita 0 til 5 stig. Á miðvikudag: Austlæg átt og dálítil él á víð og dreif en rigning með köflum vestan- og sunnanlands. Hiti 0 til 5 stig en um eða undir frostmarki norðan- og austantil. Á fimmtudag: Útlit fyrir breytilega átt. Rigning eða snjókoma með köflum á vestanverðu landinu en bjart að mestu austanlands. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Erlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Innlent Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Innlent Fleiri fréttir Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Allt að sautján stiga hiti Bjart og hlýtt sunnan heiða Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Hlýjast fyrir austan Kaldi eða strekkingur á suðvestan- og vestanverðu landinu Væta með stífri norðaustanátt Stíf norðanátt með rigningu víða um land Allvíða skúrir og lægð nálgast Víða rigning en hiti að átján stigum Úrkoma í flestum landshlutum í dag Úrkoma víða og hiti að sextán stigum Víða skúraleiðingar og hiti að fimmtán stigum Sextán stig en líkur á síðdegisskúrum Bjartviðri suðvestanlands en líkur á skúrum Allhvasst suðaustantil og sums staðar rigning Viðrar vel til hátíðarhalda á höfuðborgarsvæðinu Hiti að átján stigum norðan og vestantil Austlæg átt og víða líkur á vætu 250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Áfram rólegheitaveður en líkur á síðdegisskúrum Sólin sleikir landsmenn Áfram bongó í kortunum og nú um allt land „Gegnumgangandi bongó um helgina“ Hitinn náði yfir tuttugu stig Möguleiki á að hiti fari yfir tuttugu stig í höfuðborginni Möguleiki á tuttugu stiga hita Útlit fyrir besta dag sumarsins á föstudaginn Skúrir víða um land og lægð nálgast austurströnd „Mjög venjulegt sumarveður“ Sjá meira