Dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir að útvega hryðjuverkamanni byssu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 5. apríl 2024 06:59 Kona leggur blóm að minnisvarða um látnu. epa/Patrick Seeger Maður hefur verið dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir að hafa útvegað Cherif Chekatt skotvopn, sem hann notaði til að myrða fimm manns á jólamarkaði í Strasbourg í Frakklandi árið 2018.
Audrey Mondjehi, 42 ára, hafði deilt fangaklefa með Chekatt og var ákærður fyrir að hafa aðstoðað hann í aðdraganda árásarinnar. Mondjehi hélt því fram við réttarhöldin að hann hefði ekki vitað hvað Chekatt hefði haft í hyggju og að hann væri mjög hryggur vegna árásarinnar. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að það hefði ekki tekist að sýna fram á að Mondjehi hefði vitað hvað til stóð. Þannig væri ekki hægt að dæma hann fyrir að hafa átt aðkomu að hryðjuverki. Tveir aðrir fengu styttri dóma fyrir að aðstoða Chekatt en einn var sýknaður. Chekatt var á lista yfirvalda yfir einstaklinga sem voru taldir möguleg ógn við þjóðaröryggi þegar hann lét til skarar skríða 11. desember 2018, vopnaður skotvopni og eggvopni. Skaut hann á fólk af handahófi og hrópaði „Allahu Akbar“. Fimm létust í árásinni og ellefu særðust. Chekatt tókst að koamst undan lögreglu með því að stökkva inn í leigubifreið en var skotinn til bana af lögreglu eftir tveggja sólahringa leit og eftirför.
Frakkland Erlend sakamál Mest lesið Nítján lík sögð hafa fundist eftir flugslys í Washington Erlent Kóranbrennumaður skotinn til bana í beinni í Svíþjóð Erlent Rússneskir heimsmeistarar meðal farþega vélarinnar Erlent Segir Sjálfstæðismenn hyggja á setuverkfall verði þeim vísað á dyr Innlent Ekki ljóst hvort skýringar Sjálfstæðismanna haldi vatni Innlent Fjórðungur barna enn í bleyju í aðlögun fyrir grunnskóla Erlent Tafir á Reykjanesbraut og víða óvissustig Innlent Sterk tilfinningabönd Sjálfstæðismanna við herbergið koma Guðmundi Ara í opna skjöldu Innlent Alla grunaði bróðurinn um að standa að baki skálduðum ásökunum Innlent Leggur fram innanhússtillögu Innlent Fleiri fréttir Merkel setur ofan í við arftaka sinn vegna stuðnings öfgahægrimanna Taka norsku stjórnina úr sambandi vegna orkumála Búið að ná 28 líkum upp úr ísilögðu vatninu Íhaldsmenn taka höndum saman við öfgamenn í aðdraganda kosninga Rússneskir heimsmeistarar meðal farþega vélarinnar Norska stjórnin gæti sprungið í dag Fjórðungur barna enn í bleyju í aðlögun fyrir grunnskóla Kóranbrennumaður skotinn til bana í beinni í Svíþjóð UNRWA hættir líklega allri starfsemi á Gasa og Vesturbakkanum í dag Nítján lík sögð hafa fundist eftir flugslys í Washington Gruna að DeepSeek byggi á gögnum ChatGPT Tekur formlega völd í Sýrlandi en heitir kosningum Fjórir Norðmenn látnir eftir snjóflóð í Ölpunum Vill senda þrjátíu þúsund innflytjendur til Guantánamo Draga minnisblað til baka eftir mikla óreiðu Fjöldi rúmenskra málaliða gafst upp í Rúanda Tengja hrinu sprenginga í Svíþjóð við glæpasamtök Líf norsku stjórnarinnar hangir á bláþræði vegna fjórða orkupakkans Segir Selenskí ólögmætan og ófæran um að skrifa undir eitt né neitt Alþjóðastofnanir draga saman seglin vegna Trump Býður milljónum starfsmanna að hætta gegn átta mánaða biðlaunum Áttatíu og fimm prósent vilja ekki tilheyra Trump Segir Rússa hafa ætlað að ráða fleiri iðnaðarleiðtoga af dögum Segir Robert frænda sinn athyglissjúkt rándýr Mona Lisa fær sérherbergi Forsætisráðherra Serbíu segir af sér í kjölfar mótmæla Sökuð um að hafa pyntað dóttur sína fyrir fylgjendur og peninga Google breytir nafninu á Mexíkóflóa Segja átta látna af þeim 26 gíslum sem láta á lausa Trump enn iðinn við kolann: Beinir sjónum að hernum og alþjóðasamvinnu Sjá meira