Trump er enn frjálst að tjá sig um Merchan sjálfan og Alvin Bragg, héraðssaksóknara en honum hefur einnig verið meinað að tjá sig um fjölskyldu Braggs.
Í skipun sinni sagði Merchan að tilhneiging Trumps til að ráðast á fjölskyldumeðlimi dómara og saksóknara í málunum gegn honum þjónaði engum réttmætum tilgangi. Ummælunum væri eingöngu ætlað að hræða starfsfólk dómskerfisins og fjölskyldumeðlimi þeirra, samkvæmt AP fréttaveitunni.
Brjóti Trump gegn skipuninni gæti hann verið dæmdur fyrir að vanvirða dómstólinn og verið sektaður eða jafnvel sendur í fangelsi.
Eitt af fjórum málum gegn Trump
Þetta mál er eitt af fjórum dómsmálum gegn Trump og snýr í stuttu máli sagt að því þegar Michael Cohen greiddi klámleikkonunni Stormy Daniels 130 þúsund dali skömmu fyrir forsetakosningarnar 2016. Greiðslunni var ætlað að koma í veg fyrir að Daniels segði frá meintu framhjáhaldi Trumps með henni á árum áður.
Trump endurgreiddi Cohen en þær greiðslur voru skráðar í bókhald forsetans fyrrverandi sem lögfræðikostnaður og er hann sakaður um að hafa falsað skjöl í 34 liðum. Verði hann dæmdur sekur gæti hann verið dæmdur til allt að fjögurra ára fangelsisvistar.
Réttarhöldin eiga að hefjast þann 15. apríl, þegar kviðdómendaval hefst.
Donald Trump hefur verið ákærður fjórum sinnum.
Jack Smith, sérstakur rannsakandi dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna, hefur ákært Trump í tveimur málum. Annað þeirra snýr að viðleitni hans til að snúa úrslitum forsetakosninganna í Bandaríkjunum árið 2020 á landsvísu. Réttarhöldin áttu að hefjast 4. mars en hefur verið frestað um óákveðinn tíma á meðan hæstiréttur tekur kröfu Trumps um algera friðhelgi til skoðunar.
Hitt snýr að opinberum gögnum og leynilegum skjölum sem hann tók með sér úr Hvíta húsinu þegar hann flutti til Flórída og neitaði að afhenta. Réttarhöldin áttu að hefjast 20. maí en óljóst er hvenær þau munu fara fram.
Hann hefur einnig verið ákærður í New York fyrir brot á lögum um kosningar vegna þagnargreiðslu til klámmyndaleikkonunnar Stormy Daniels. Réttarhöldin áttu að hefjast 25. mars en hefur verið frestað til 15. apríl.
Trump hefur þar að auki verið ákærður í Georgíu og fyrir að reyna að snúa úrslitum kosninganna þar. Ekki er búið að ákveða hvenær réttarhöldin í Georgíu eiga að hefjast en búið er að ákveða að sýnt verði frá þeim í beinni útsendingu.
Síðasta miðvikudag, eftir að Merchan meinaði Trump fyrst að tjá sig um vitni og kviðdómendur lýsti Trump því yfir á Truth Social, samfélagsmiðli sínum, að Merchan væri undir áhrifum dóttur sinnar, sem starfar hjá markaðsfyrirtæki sem unnið hefur fyrir Demókrataflokkinn. Þá staðhæfði hann að hún hefði birt mynd af Trump bakvið lás og slá á samfélagsmiðlum, sem hún gerði ekki.
Trump sakaði Merchan um að brjóta á málfrelsisrétti sínum til að tala um meinta vopnvæðingu réttarkerfisins gegn sér. Þar að auki sagði Trump að Loren Merchan fengi greitt fyrir að reyna að „ná Trump“ og kallaði hana „óðan Trump hatara“.
Forsetinn fyrrverandi krafðist þess á Truth Social að Merchan segði sig frá málinu.
Sagðist fyrirlíta dómara og saksóknara
Í öðrum færslum talaði Trump einnig um dómarann Arthur Engoron, sem gerði honum nýverið að greiða nærri því hálfan milljarð dala til New York vegna langvarandi fjársvika og kallaði hann dómarann „spilltan“ og sagði trúverðugleika hans í rúst.
Í enn einni færslunni sem hann skrifaði í hástöfum og birti um páskana óskaði Trump Bandaríkjamönnum gleðilegra páska og þar á meðal „óheiðarlegra og spilltra saksóknara og dómara sem geri allt sem þeir geta til að hafa áhrif á forsetakosningarnar 2024 og senda mig í fangelsi“. Trump sagðist fyrirlíta þetta fólk.
Þar nefndi hann meðal annars menn eins og Jack Smith, sérstakan rannsakanda dómsmálaráðuneytisins, sem heldur utan um tvö málanna gegn Trump og kallaði hann sturlaðan, illan og sjúkan. Hann nefndi Bragg einnig, áðurnefndan héraðssaksóknara í New York, og kallaði hann latan og spilltan og sakaði hann um að brjóta lögin með því að ákæra sig.
Trump nefndi einnig Fani Willi, héraðssaksóknara Fultonsýslu í Georgíu, en kallaði hana Fani „Fauni“ Wade. Ástarsamband hennar og Nathan Wade, saksóknara sem hún skipaði til að stýra málaferlunum gegn Trump vegna tilrauna hans til að snúa úrslitum forsetakosninganna í ríkinu árið 2020.
Lýsti hann því yfir að þau réttarhöld væru einnig ólögleg.
Í frétt Washington Post segir að frá því hann hóf kosningabaráttu sína í lok árs 2022, hafi Trump skrifað minnst 138 færslur á samfélagsmiðlum þar sem hann nefnir dómara í málum hans eða fjölskyldumeðlimi þeirra.
Bæði Engoron og Scott McAfee, sem er yfir áðurnefndu máli í Georgíu, hafa fengið hótanir frá því málaferlin hófust. Engoron hefur meðal annars borist sprengjuhótun og McAfee hefur verið beittur svokölluðu „Swatting“ þar sem einhver hringir í lögregluna og tilkynnir gíslatöku eða annarskonar neyðarástand á heimili einhvers, til að fá vopnaða lögregluþjóna til að ryðjast þar inn.