Lífið

Ingó veðurguð og Alexandra eiga von á stelpu

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Ingó og Alexandra eiga von á sínu öðru barni saman.
Ingó og Alexandra eiga von á sínu öðru barni saman. Ingó

Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, þekktur sem Ingó veðurguð, og kærasta hans Alexandra Eir Davíðsdóttir eiga von á stúlku í ágúst. Parið greinir frá tímamótunum í sameiginlegri færslu á Instagram.

„Litli bróðir bara spenntur að taka á móti litlu systur í ágúst. Mamma og pabbi eru enn að undirbúa sig fyrir önnur 2-3 ár af bleyjum og tímaleysi en spennt á sama tíma,“ segir í sameiginlegri færslu parsins. 

Fyrir eiga þau einn dreng sem fæddist 9. október 2022. . Ingó greindi frá því að von væri á barni þegar meiðyrðamál hans gegn Sindra Þór Sig­ríðar­syni var tekið fyr­ir í Héraðsdómi Reykja­vík­ur í maí sama ár.

Ingó og Alexandra opinberuðu samband sitt í júní 2021.


Tengdar fréttir

Ingó veðurguð og Alexandra eignuðust son

Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, einnig þekktur sem Ingó veðurguð, er orðinn pabbi. Hann tók á móti sínu fyrsta barni ásamt kærustu sinni Alexöndru Eir Davíðsdóttur. Drengurinn kom í heiminn þann 9. október. Smartland greindi fyrst frá. 

Ingó hafði betur í Landsrétti gegn Sindra Þór

Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, hafði í dag betur í meiðyrðamáli sínu á hendur Sindra Þór Sigríðarsyni Hilmarssyni í Landsrétti. Sindri Þór mátti ekki viðhafa ummæli á borð við „Skemmtikraftur sem hefur stundað það síðastliðin 12-13 ár að ríða börnum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.