Lægir og dregur víðast úr vætu þegar líður á daginn Atli Ísleifsson skrifar 26. febrúar 2024 07:13 Gert er ráð fyrir tíu til átján metrum á sekúndu. Vísir/Vilhelm Lægð á Grænlandshafi stjórnar veðrinu á landinu í dag en nú í morgunsárið er allhvöss sunnanátt á landinu og talsverð rigning sunnan- og vestanlands. Þó er úrkomulítið um landið norðaustanvert.
Á vef Veðurstofunnar segir að það muni lægja smám saman og draga úr vætu, en þó sé útlit fyrir að áfram rigni sleitulítið sunnantil á landinu. Gert er ráð fyrir tíu til átján metrum á sekúndu og að hiti verði yfirleitt á bilinu tvö til átta stig. Vetrarfærð er nú víða á vegum landsins. Hvasst víða og flughálka að myndast á Vestfjörðum og á Norðurlandi að því er fram kemur á upplýsingasíðu Vegagerðsarinnar. Víða er ófært eftir nóttina og er unnið að hreinsun. Ófært er um Bröttubrekku og á Holtavörðuheiði en unnið er að mokstri. Sömu sögu er að segja af Öxnadalsheiðinni og þá er flughálka á Þverárfjalli. „Í kvöld gengur lægðin austur yfir landið og þá má búast við rigningu í flestum landshlutum. Norðvestan og vestanátt á morgun, víða kaldi eða stinningskaldi, en hvassara austast á landinu fram eftir morgni. Snjókoma eða slydda með köflum víða um land og hiti um eða yfir frostmarki, en síðdegis kólnar og fer að draga úr ofankomu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 15 í dag.Vísir/Vilhelm Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Norðvestan og vestan 8-15 m/s, en hvassara austast fram eftir morgni. Snjókoma eða slydda norðanlands, en skúrir eða él syðra. Hiti um eða yfir frostmarki. Dregur úr vindi síðdegis, él víða um land og kólnar. Á miðvikudag: Austan og suðaustan 5-13 og dálítil él suðaustantil, annars þurrt að kalla. Frost 0 til 9 stig. Snjókoma eða slydda með köflum undir kvöld, en áfram úrkomulítið á Norðurlandi. Hlýnar heldur. Á fimmtudag: Gengur í norðan og norðaustan 15-23 m/s, fyrst norðanlands. Snjókoma eða slydda víða um land og hiti kringum frostmark. Úrkomulítið á sunnanverðu landinu síðdegis og kólnar. Á föstudag: Allhvöss norðanátt og snjókoma eða él, en þurrt að kalla sunnan heiða. Dregur úr vindi og ofankomu seinnipartinn. Frost 1 til 8 stig. Á laugardag: Breytileg átt, bjart með köflum og yfirleitt þurrt. Frost 0 til 10 stig, kaldast inn til landsins. Á sunnudag: Suðlæg átt með lítilsháttar vætu og hlýnandi veðri, en þurrt og svalt á Norður- og Austurlandi.
Veður Mest lesið Kerecis bjargaði lífi skallaarnar í tæka tíð fyrir fjórða júlí Innlent Sex fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys í Hörgársveit Innlent Búið að boða til nýs fundar Innlent Tuttugu og fimm stúlkna saknað úr sumarbúðum vegna flóða Erlent Lítill munur á bitum bitmýs og lúsmýs Innlent Lögregla hleypti manni inn sem hafði læst sig úti Innlent Sósíalistum bolað úr Bolholti Innlent Minnst þrettán látnir og tuttugu barna saknað eftir flóð í Texas Erlent Sambýliskonan sem sá allt og bróðirinn sem þekkti ekki fjölskylduna Innlent Nýtt bankaráð Seðlabankans skipað Innlent Fleiri fréttir Fínasta veður um land allt Hægviðri, hafgola og hiti að átján stigum Skúrir á víð og dreif Rigning með köflum sunnan- og vestanlands Skúrir víða um land og lægð nálgast Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Skýjað og skúrir en ekki of kalt Allt að sautján stiga hiti í dag Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Sjá meira