Kveikti í sér fyrir utan sendiráð Ísrael í Washington D.C. Hólmfríður Gísladóttir skrifar 26. febrúar 2024 06:40 Maðurinn sagðist ekki vilja vera aðili að þjóðarmorði. Getty/Anadolu/Celal Gunes Maður var fluttur á sjúkrahús í gær eftir að hafa kveikt í sér fyrir utan sendiráð Ísraels í Washington D.C. í Bandaríkjunum. Hann er sagður hafa kallað „Frjáls Palestína“ áður en hann hellti yfir sig olíu og bar eld að sér.
Samkvæmt lögregluyfirvöldum í borginni var kallað á slökkvilið til að aðstoða leyniþjónustuna, sem var fyrir á vettvangi. Haft er eftir viðbragðsaðilum að maðurinn hafi verið alvarlega særður. Hann er sagður hafa starfað fyrir flugherinn og hafa verið einkennisklæddur þegar atvikið átti sér stað. Samkvæmt Associated Press hélt maðurinn á síma þegar hann gekk að sendiráðinu en hann er sagður hafa streymt gjörningnum á Twitch. Hann lét símann niður, hellti yfir sig olíu og kveikti í. Áður hrópaði hann „Frjáls Palestína“ og sagðist ekki vilja vera samsekur um þjóðarmorð. Myndskeiðið var fjarlægt af Twitch. Sprengjusveit var kölluð á vettvang vegna grunsamlegrar bifreiðar sem talið var mögulegt að tengdist maninum. Engin sprengjuefni fundust. Mótmæli hafa átt sér stað við sendiráðið vegna árása Ísraelsmanna á Gasa. Þá kveikti maður í sér fyrir utan sendiskrifstofu Ísrael í Atlanta í desember síðastliðnum. Maðurinn og vörður við sendiskrifstofuna voru fluttir á sjúkrahús með brunasár. Engan annan sakaði við sendiráðið í Washington.
Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Bandaríkin Mest lesið Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent „Höfum ekki unnið nóg“ Erlent Vaxandi ótti við langvarandi átök Erlent Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Innlent Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Innlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Fleiri fréttir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Sjá meira