Loka fyrir heitt vatn á meðan ný hitaveitulögn er tengd Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. febrúar 2024 14:41 Hjáveitu lögnin fer yfir nýja hraunið. Vísir/Vilhelm HS Veitur munu á morgun loka fyrir heitt vatn í Grindavík frá klukkan 09:00 og fram á kvöld á meðan verið er að tengja hjáveitu hitalögn sem kemur í stað þeirrar sem skemmdist í eldgosi þann 14. janúar síðastliðinn.
Í tilkynningu frá HS Veitum kemur fram að eftir að í ljós hafi komið að hitaveitulögn sem liggur undir hrauni frá því í eldgosinu í janúar hafi reynst skemmd hafi HS Veitur unnið að úrbótum í samvinnu við Almannavarnir og verktaka. Skemmdirnar á lögninni valda því að hátt í helmingur af því heita vatni sem sent er frá orkuverinu í Svartsengi tapast á leiðinni til Grindavíkur. Afleiðingarnar eru þær að erfitt hefur reynst að ná upp þrýstingi í hitaveitunni í bænum. Gekk ekki að grafa niður að lögninni Fram kemur í tilkynningunni að í fyrstu hafi verið gerð tilraun til að grafa niður að lögninni í gegnum heitt hraunið þar sem talið sé að lekinn sé. Þegar það tókst ekki var ráðist í vinnu við að koma fyrir hjáveitu hitaveitulögn yfir nýja hraunið. Segja HS Veitur að framkvæmdirnar hafi gengið vel og er áætlað að tengja lögnina við hitaveituna í Grindavík á morgun, laugardag. Því verður lokað fyrir heitt vatn í Grindavík frá klukkan 09:00. Lokað verður fyrir heita vatnið þar til framkvæmdum líkur. Gera má ráð fyrir að heitt vatn verði komið aftur á annað kvöld og að lítill þrýstingur verði áfram á hitaveitunni í Grindavík fram á mánudag.
Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Grindavík Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól Sjá meira