Sextán ára handtekinn fyrir háskaakstur eftir eftirför á hálum ís Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. febrúar 2024 06:21 Hvorki ökumaður né farþegi bifreiðarinnar voru með ökuréttindi. Vísir/Vilhelm Betur fór en á horfðist í gærkvöldi þegar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu neyddist til að hefja eftirför eftir ökumanni bifreiðar sem sást aka gegn rauðu ljósi og sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu.
Ökumaðurinn jók þvert á móti hraðann til að komast undan og ók á allt að 150 km/klst þar sem hámarkshraði er 60 km/klst, þrátt fyrir mikla hálku á svæðinu. „För hans var stöðvuð með því að aka í veg fyrir hann við gott tækifæri og stöðvaði hann áður en til áreksturs kom,“ segir í tilkynningu lögreglu en í ljós kom að ökumaðurinn var aðeins 16 ára gamall og eðli málsins samkvæmt ekki með ökuréttindi. Í bifreiðinni með honum var 17 ára farþegi sem var heldur ekki með ökuréttindi. Ökumaðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöð enda grunaður um fjölda umferðarbrota. Forráðamaður kom síðan og vitjaði barnsins en lögregla segir mikla mildi að engin slys urðu á fólki. Nokkrir aðrir ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur og þá var einn staðinn að því að nota farsíma án handfrjáls búnaðar. Ein tilkynning barst um umferðarslys þar sem tvær bifreiðar reyndust skemmdar auk vegriðs. Þá bárust lögreglu einnig tilkynningar vegna einstaklinga í annarlegu ástandi og grunsamlegra mannaferða.
Lögreglumál Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira