Martin sleit krossband í leik með Valencia á Spáni fyrir tveimur árum síðan. Það hefur gengið hægt hjá honum að finna sitt fyrra form og mikil samkeppni var í hans stöðu hjá félaginu. Hann ákvað að stökkva á tækifærið að færa sig yfir til Berlínar og semja við Alba Berlín í byrjun þessa árs.
Hann segir líkamann allan vera að koma til en hefur haft nóg að gera utan vallarins.
„Ég er þokkalegur. Auðvitað er búið að vera mikið álag síðustu vikur. Skipti frá Valencia til Berlínar svo það hefur verið mikið að gera í persónulega lífinu. Að skipta um íbúð, koma stráknum fyrir á nýjum leikskóla, svo er konan ólétt svo við erum að finna spítala og allt þetta,“

„Þetta er búin að vera algjör geðveiki en ég er ánægður. Ég er byrjaður að spila mikið aftur og að reyna að finna taktinn hægt og rólega. Þetta er allt á leiðinni í rétta átt.“
Búinn með síðustu IKEA ferðina í bili
Eins og Martin minnist á er Anna María Bjarnadóttir, unnusta hans, ólétt af þeirra öðru barni. Meðgangan hefur gengið vel og stutt eftir. Martin vonast til að hún haldi í sér svo hann geti spilað fyrsta landsleikinn í rúm tvö ár.
„Það hefur allt gengið vel og bara mánuður eftir. Svo er líka það, ef hún hringir og fer af stað í nótt þá þarf ég að bruna af stað. En það gengur allt mjög vel og við erum mjög ánægð að vera komin aftur til Berlínar. Ég hlakka til að komast í rútínu og líða eins og ég sjálfur aftur,“ segir Martin sem er kominn með nóg af ferðum í IKEA eftir flutninga síðustu vikna.

„IKEA maður,“ segir Martin og dæsir. „Ef þeir eru að horfa mega þeir fara að sponsa mig. Ég er búinn að eyða allt of miklum peningi þarna. En þetta er hluti af þessu. Fjölskyldunni og konunni þarf að líða vel þannig að maður hlustar á hana.“
Kampavínið bíður í kælinum
Auk Ungverjalands eru Tyrkland og Ítalía í sterkum riðli Íslands í undankeppni Evrópumótsins. Verkefnið er erfitt en Martin hefur trú á íslenska liðinu.
„Þetta eru allt mjög erfiðir leikir. Hver einasti leikur er do or die. Við þurfum að byrja hérna heima á móti Ungverjalandi sem er það lið sem er kannski næst okkur í styrkleika af þessum þremur,“ segir Martin.
„En við erum búnir að sýna það síðustu ár að við erum með hörkulið og getum unnið alla, sérstaklega hérna heima. Það verður full höll sem gefur okkur mjög mikið og við erum mjög spenntir að spila fyrir framan fólkið okkar,“ segir Martin sem fylgdist með þegar Ísland komst grátlega nærri HM-sæti í síðustu undankeppni.
„Okkur langar á annað stórmót, við vorum grátlega nálægt því í fyrra. Ég horfði á leikinn heima, kampavínið er ennþá í kalt inni í ísskáp og vonandi næ ég að opna það eftir þennan glugga.“
Viðtalið við Martin má sjá í spilaranum að ofan.