Hlýnar smám saman og allvíða frostlaust Atli Ísleifsson skrifar 14. febrúar 2024 07:10 Gera má ráð fyrir að það verði allvíða frostlaust á vestanverðu landinu í dag. Vísir/Vilhelm Landsmenn mega reikna með að það hlýni smám saman og verði allvíða frostlaust um landið vestanvert í kvöld. Að sama skapi verður úrkoma hér og þar, slydda eða snjókoma og er að sjá að mesta úrkoman verði á Vestfjörðum.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að úrkomubakkinn færist svo yfir á norðanvert landið á morgun og eins gæti orðið eftir einhverjar smáleyfar á Faxaflóasvæðinu fram eftir degi. Reikna má með suðvestan 8 til 15 metra á sekúndu í dag þar sem verður hvassast og snjókoma öðru hvoru norðvestantil. Heldur hvassaranorðanlands í kvöld. Þá að verði allvíða frostlaust vestantil verður víðast annars staðar núll til fimm stiga frost. Á föstudag bætir svo smám saman í austanáttina syðst á landinu og mildara loft ýtir kalda loftinu smám saman burt. Svo að helgin verður mild og vætusöm um mest allt land en nýjustu spár benda til að það kólni svo aftur á þriðjudag í næstu viku. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Hæg suðlæg eða breytileg átt og víða dálítil él norðantil og stöku él vestantil fyrripartinn, en skýjað með köflum og þurrt suðaustantil. Frostlaust syðst, en frost annars 0 til 8 stig, mest inn til landsins. Á föstudag: Vaxandi austanátt, 10-15 m/s undir kbvöld og lengst af þurrt, en hægari og bjartviðri norðan- og austantil. Hægt hlýnandi veður. Á laugardag: Stíf suðaustanátt með rigningu, einkum suðaustanlands, en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti 1 til 6 stig. Á sunnudag og mánudag: Suðlæg átt, væta með köflum og milt veður. Á þriðjudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt með éljum um landið vestanvert og kólnar smám saman.
Veður Mest lesið Hvetja ráðuneytið til að kynna sér málið og leiðrétta rangfærslur Innlent Rúmlega 300 ökumenn sviptir eða sektaðir í dag á Kringlumýrarbraut Innlent Sautján ára drengur drukknaði á Hróarskeldu Erlent Umræður um veiðigjaldafrumvarpið slá nýtt met Innlent Reykjanesbraut verður öll orðin tvöföld fyrir veturinn Innlent Játar að hafa myrt fjórmenningana í Idaho Erlent Fjölskyldan franska sendi ættingjum erfðaskrá frá Íslandi Innlent Bubbi gerir sögulegan samning um eigin líkindi til allrar framtíðar Innlent Táningsstúlkan sem lést var að teyma íslenskan hest Erlent Telur að allt fari í skrúfuna verði ekki brugðist við Innlent Fleiri fréttir Rigning með köflum sunnan- og vestanlands Skúrir víða um land og lægð nálgast Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Skýjað og skúrir en ekki of kalt Allt að sautján stiga hiti í dag Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Óveðrinu slotar en áfram hætta á skriðuföllum Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Það versta yfirstaðið en veður áfram leiðinlegt á morgun Sjá meira