Fjögur mörk frá Sigvalda í stórsigri Smári Jökull Jónsson skrifar 11. febrúar 2024 17:30 Sigvaldi Björn og félagar unnu sigur í dag. Kolstad Sigvaldi Björn Guðjónsson fann netmöskvana í fjögur skipti þegar Kolstad vann sigur í norsku úrvalsdeildinni í dag. Elín Jóna Þorsteinsdóttir þurfti hins vegar að sætta sig við tap í Danmörku.
Fyrir leik Kolstad og Bækkelaget í dag var búist við þægilegum leik fyrir topplið Kolstad enda Bækkelaget á meðal neðstu liða. Sú varð líka raunin. Eftir nokkuð jafnar upphafsmínútur skoraði Kolstad níu mörk í röð í stöðunni 7-7 og leiddu með tíu mörkum í hálfleik. Staðan þá 19-9. Síðari hálfleikurinn var því í raun aðeins formsatriði. Kolstad missti muninn aldrei niður fyrir tíu mörkin og fagnaði að lokum 35-25 sigri. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði fjögur mörk fyrir Kolstad í dag sem er með fimm stiga forskot á toppi norsku deildarinnar eftir smá bras í upphafi tímabils. Ótrúlegur endir hjá liði Elínar Jónu Í Danmörku var landsliðsmarkvörðuinn Elín Jóna Þorsteinsdóttir mætt í slaginn með liði Álaborgar sem situr í efsta sæti næst efstu deildar. Álaborg mætti Holstebro á útivelli sem var í fjórða sæti fyrir leikinn. Fyrri hálfleikur var jafn og voru gestirnir frá Álaborg í ágætri stöðu að honum loknum og leiddu 15-12. Síðari hálfleikur hófst á svipuðum nótum og þegar hann var hálfnaður var staðan 21-21. Þá varð hins vegar algjört hrun hjá liði Elínar Jónu. Heimaliðið hreinlega valtaði yfir lið Álaborgar síðustu fimmtán mínúturnar og skoruðu fjórtán mörk gegn fjórum. Lokatölur 34-25 fyrir Holstebro og fyrsta tap Álaborgar á tímabilinu staðreynd. Í tölfræði leiksins eru því miður ekki gefið upp hversu mörg skot markmenn liðanna vörðu.
Norski handboltinn Danski handboltinn Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira