Bílalúgurnar eru okkar sérstaða Lyfjaval 5. febrúar 2024 10:23 Fimmta bílaapótek Lyfjavals opnaði á Miklubraut í Reykjavík síðasta föstudag. Þar fæst hefðbundið úrval af lyfseðilsskyldum lyfjum og allt það helsta af lausasölulyfjum auk úrvals vítamína, bætiefna, hjúkrunarvara og annarrar apóteksvara. Síðasta föstudag, 2. febrúar, opnaði fimmta bílaapótek Lyfjavals á Miklubraut í Reykjavík en Lyfjaval rekur nú fimm bílaapótek.
Elsta bílaapótekið var opnað í Hæðasmára árið 2005 og fólk er því farið að þekkja þessa tegund þjónustu. Lyfjaval Vesturlandsvegi var opnað 2020, Lyfjaval Suðurfelli í september 2022, Lyfjaval Reykjanesi í febrúar 2023 og svo Lyfjaval Miklubraut sem opnað var í dag, 2. febrúar. Öll bjóða þessi apótek upp á hefðbundið úrval af lyfseðilsskyldum lyfjum og allt það helsta af lausasölulyfjum auk úrvals vítamína, bætiefna, hjúkrunarvara og annarrar apóteksvara. Til viðbótar við bílaapótekin rekur Lyfjaval apótek í Glæsibæ og Urðarhvarfi. Þar er vöruúrval meira en í minni apótekunum. Á lyfjaval.is getur fólk pantað lyf og aðrar vörur og valið um að sækja í eitthvert apótekanna eða fá sent heim. Elsta bílaapótek Lyfjavals var opnað í Hæðasmára árið 2005 og er opið allan sólarhringinn, sjö daga vikunnar. Meira næði í lúgunum Svanur Valgeirsson, framkvæmdastjóri Lyfjavals, segist þakklátur fyrir þær viðtökur sem Lyfjaval hafi fengið, sérstaklega hversu vel viðskiptavinirnir virðist kunna að meta apótek sem bjóði langan opnunartíma og afgreiðslu í gegnum bílalúgur. Það hafi sýnt sig að viðskiptavinirnir kunni vel að meta að þurfa ekki að fara út úr bílnum. Svanur Valgeirsson er framkvæmdastjóri Lyfjavals, „Bílalúgurnar eru klárlega okkar sérstaða og það er gaman að finna hvað fólki finnst þetta þægilegt. Við finnum að viðskiptavinir okkar kunna vel að meta að í lúgunum er meira næði en stundum inni í apótekunum og biðin eftir afgreiðslu er einfaldlega styttri þegar þú situr í bílnum. Það er svo auðvitað mjög þægilegt að þurfa ekki að fara úr bílnum, hvort sem þú ert með sofandi barn í bílnum, átt erfitt með gang eftir aðgerðir eða af öðrum ástæðum, nú eða bara vegna þess að þú vilt sitja í hlýjunni meðan þú bíður eftir afgreiðslu. Við finnum að fólk kann að meta þessa þjónustu og því erum við full tilhlökkunar að opna enn fleiri apótek af þessu tagi.“ Lyfjaval Reykjanesi opnaði í febrúar 2023 og er opið frá kl. 9 til 21 alla daga vikunnar. Opið allan sólarhringinn Svanur segist líka stoltur að geta sagst reka eina apótekið á landinu sem opið er allan sólarhringinn. Lyfjaval í Hæðasmára hefur nú verið opið allan sólarhringinn í tæpt ár og alveg ljóst að þörfin fyrir þessa þjónustu er til staðar. „Fólk þarf á lyfjum að halda jafnt á nóttu sem degi og við erum til staðar fyrir þá sem eru á ferðinni á nóttunni eða ef upp koma veikindi þegar aðrir eru með lokað,“ segir Svanur. Aðspurður hvort opnunartími sé ekki orðinn of langur segir Svanur að vissulega væri þægilegt og ódýrara að vera með minna opið en það henti ekki öllum að koma í apótek milli kl. 9 og 18 virka daga. „Við finnum þörfina fyrir löngum opnunartíma og þess vegna er bara alltaf opið í Hæðasmára og Lyfjaval á Vesturlandsvegi og á Miklubraut eru bæði opin alla daga frá kl. 9 til 22 og Reykjanesið frá kl. 9 til 21. Viðskiptvinurinn þarf á löngum opnunartíma að halda og þá bara sinnum við þeirri þörf með gleði,“ segir Svanur Valgeirsson. Apótek Lyfjavals eru nú sjö talsins, fimm bílaapótek í Hæðasmára, við Vesturlandsveg, í Suðurfelli, við Aðaltorg í Reykjanesbæ og svo nýja bílaapótekið við Miklubraut sem opnað var 2. febrúar. Að auki eru svo apótek í Glæsibæ og Urðarhvarfi. Nánari upplýsingar á lyfjaval.is.
Lyf Verslun Mest lesið Vill laga „hringekju verðtryggingar og hárra vaxta“ Viðskipti innlent Á ég að hætta í núverandi sparnaði? Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri félags í eigu Íslendinga dæmdur fyrir fjárdrátt Viðskipti erlent Ísland undanþegið stórauknum verndartollum ESB Viðskipti innlent Strava stefnir Garmin Viðskipti erlent Gamalt ráðuneyti verður hótel Viðskipti innlent AMD upp um fjórðung eftir risasamning við OpenAI Viðskipti erlent Óljóst hvort veðhafar fái nokkuð Viðskipti innlent Einar hættir af persónulegum ástæðum Viðskipti innlent Birna Ósk nýr forstjóri Húsasmiðjunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir KLAK health býður sprotafyrirtæki í heilsutækni velkomin Hreinsun þakrenna fyrirbyggir skemmdir Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Viðskiptavinurinn alltaf í fókus Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Greiðsluáskorun BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Sjá meira