Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Ég hef alltaf vaknað frekar snemma og finnst mjög gott að vera aðeins einn með sjálfum mér. Klukkan er stillt fyrir klukkan sjö en oftar en ekki vakna ég aðeins áður, hef eiginlega alltaf verið þannig.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Kaffivélin er minn besti vinur á morgnana og svo byrja ég daginn á því að taka stöðuna á vinnutengdum málum Um tíma fór ég í crossfit klukkan sex eða sjö en ég hef fundið að hádegið er besti tíminn fyrir mig til að taka æfingu dagsins.“
Syngur þú stundum þegar þú ert einn í bílnum?
Ég held að allir sem þekkja mig vita að svarið við þessu er NEI enda afburðalélegur söngvari og ég myndi ekki einu sinni gera sjálfum mér að hlusta á sjálfan mig.
Ég er hinsvegar góður að tromma á stýrið við fjörugt og gott lag.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Upphafi hvers árs eru það alltaf sömu stóru málin sem snúast um að klára rekstraruppgjör síðasta árs og leggja lokahönd á áætlun þessa árs.
Nú í upphafi árs skrifuðum við undir yfirlýsingu um könnunarviðræður um sameiningu Samkaupa, Heimkaupa og Orkunnar. Samkaup hafa aukið hlutdeild sína á matvörumarkaði á undanförnum árum, en það eru enn mikil tækifæri til að bjóða fjölbreyttara vöruúrval og þjónustu um allt land með frekari vexti. Með þessum viðræðum viljum við skoða hvort við getum náð þessum markmiðum með mögulegum samruna. Það eru spennandi tímar framundan hjá Samkaupum og við finnum fyrir miklum áhuga og trú á það sem við höfum verið að gera.
Það er mikilvægt að klára eitthvað af þessum stóru málum því í byrjun febrúar er fyrirhugað langþráð stutt skíðafrí með góðum vinum.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
„Ég hef gert margar tilraunir hvað varðar skipulagningu í vinnu og einkalífi en ég enda alltaf á sama stað. Það er að skrifa niður verkefni, símtöl og hvað eina sem þarf að framkvæma á hverjum degi og finna sælutilfinninguna þegar maður getur strikað afgreidd mál af listanum.
Ég lagði dagbókinni fyrir nokkru og handskrifa nú verkefnalista samtengt við dagbókina í outlook.
Þetta er besta skipulagstól sem ég hef fundið og hef ég prófað þau mörg.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Það er mjög misjafnt en ég reyni að hafa reglu að sofa alltaf sjö til átta tíma. Mér finnst gott að gleyma mér í lestri bóka og að hafa eitt kvöld í viku þar sem maður er kominn uppí rúm klukkan níu er algjör gæðastund en það mætti alveg gerast oftar.“