Króatar vita ekki hvort þeir ætla að tapa viljandi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. janúar 2024 11:30 Goran Perkovac, þjálfari Króatíu, stendur á gati hvernig hann á að undirbúa lið sitt fyrir leikinn gegn Þýskalandi. getty/Marco Steinbrenner Þjálfari króatíska karlalandsliðsins í handbolta veit ekki hvað hann á að segja við leikmenn þess fyrir leikinn gegn Þýskalandi í milliriðli 1 á EM í dag.
Króatía er nefnilega í þeirri skrítnu stöðu að hagnast á tapi. Ef Þýskaland vinnur leikinn og kemst í undanúrslit EM fer Króatía í umspil um sæti á Ólympíuleikunum. „Ég veit ekki hvað við getum gert. Við verðum að spila okkar besta leik og sjá svo hvað gerist. En að fara inn í leikinn gegn Þýskalandi og tapa viljandi er ekki heiðarlegt. Ég held ekki,“ sagði Goran Perkovac, þjálfari króatíska liðsins. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég er í svona stöðu, að fara inn í leik og vilja tapa. Þetta verður mjög erfitt,“ bætti Perkovac við. Hann hefur ekki hugmynd um hvað hann á að segja við leikmenn sína fyrir leikinn gegn Þýskalandi í dag. „Ég veit ekki. Við verðum að tala um þetta. Ég veit ekki hvað ég á að segja,“ sagði Perkovac. Króatar eru næstir inn í umspilssæti fyrir Ólympíuleikana, út frá árangri á síðasta HM. Einn öruggur farseðill á ÓL er í boði á EM, fyrir Evrópumeistarana (eða næsta lið á eftir Danmörku og Frakklandi sem eru þegar komin inn á ÓL). Austurríki er eina liðið sem enn getur náð þessum farseðli á ÓL, sem ekki er þegar komið inn á ÓL eða í ÓL-umspilið. Það vilja Króatar ekki að gerist því að þeir eru næstir inn í ÓL-umspilið út frá árangri á síðasta HM, og fá það sæti ef að lið sem var komið inn í umspilið (Svíþjóð, Þýskaland eða Ungverjaland) kemst beint á ÓL í gegnum EM. Eftir standa síðan tvö laus sæti í umspilið hjá þeim þjóðum sem eru ekki þegar komnar í umspilið eða á ÓL. Íslenska landsliðið dreymir um annað þeirra sæta.
EM 2024 í handbolta Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Íslenski boltinn „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira