Hraunflæði innan bæjarmarkanna fjarar út Jón Þór Stefánsson skrifar 15. janúar 2024 03:07 Hraunflæðið úr syðri sprungunni hefur nú þegar valdið gríðarlegum skemmdum í Grindavík. RAX „Okkur sýnist syðri sprungan, sem er innan bæjarmarkanna, alveg vera að gefa upp öndina,“ segir Elísabet Pálmadóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við fréttastofu. „
Það koma spýjur sem rétt ná upp á yfirborðið öðru hverju. En það er alveg rosalega lítil virkni, þannig mér sýnist þetta alveg vera að fjara út núna.“ Jafnframt segir Elísabet að þar af leiðandi hafi hraunrennsli úr þeirri sprungu líka stöðvast. Hraun úr sprungunni hefur valdið eldsvoða í þremur húsum í Grindavík. Svo virðist sem hraunið hafi numið staðar við girðingu að garði fjórða hússins. Syðri sprungan hefur verið talsvert smærri en sú sem er norðar, en þar sem hún myndaðist innan varnargarðs, sem átti að vernda Grindavík, hefur hún ógnað byggð talsvert meira. Líkt og áður segir hefur hraunflæði úr henni nú þegar valdið miklum skemmdum í Grindavík, með eldsvoða í þremur húsum. Elísabet segir að Veðurstofan hafi orðið vör við vinnu vestast í Grindavík í nótt, þar sem hinn hraunstraumurinn gæti farið að ógna. „Það er svolítið í það, en þeir eru búnir að vinna hörðum höndum í nótt. Þeir reyna að koma upp einhverjum vörnum þar.“ Aðspurð um hvort lok syðri sprungunnar hafi eitthvað að segja um líkur á nýjum gossprungum í þessum atburði segir Elísabet erfitt að segja til um það.
Grindavík Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira