Albert lagði upp er Genoa stal stigi af toppliðinu Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 29. desember 2023 21:53 Albert Guðmundsson og félagar fagna marki kvöldsins. Vísir/Getty Albert Guðmundsson og félagar í Genoa gerðu 1-1 jafntefli er liðið tók á móti Inter, toppliði ítölsku úrvalsdeildarinnar, í kvöld. Albert var á sínum stað í byrjunarliði Genoa og lék allan leikinn fyrir heimamenn. Það voru þó gestirnir í Inter sem tóku forystuna þegar Marko Arnautovic kom boltanum í netið á 42. mínútu. Það leit því allt út fyrir að gestirnir færu með forystu inn í hálfleikinn, en Radu Dragusin jafnaði metin fyrir Genoa á sjöundu mínútu uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar hann stangaði hornspyrnu Alberts í netið og staðan var því 1-1 þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja. https://twitter.com/GenoaCFC/status/1740835495255716059 Þrátt fyrir nokkur ákjósanleg færi í síðari hálfleik tókst liðunum ekki að bæta mörkum við fyrir lokaflautið og niðurstaðan varð því 1-1 jafntefli. Inter er nú með fimm stiga forskot á toppi deildarinnar, en liðið er með 45 stig eftir 18 leiki. Albert og félagar sitja hins vegar í 13. sæti með 20 stig. Ítalski boltinn