„Þægilegt markmið að stefna á Ólympíuleikana“ Smári Jökull Jónsson skrifar 28. desember 2023 23:30 Aron Pálmarsson er landsliðsfyrirliði í handbolta. vísir/Sigurjón Landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmarsson segir að nýr landsliðsþjálfari Snorri Steinn Guðjónsson sé góður í því að kveikja í mönnum fyrir stórmótið sem framundan er.
Ísland tekur þátt á Evrópumótinu í Þýskalandi í næsta mánuði. Liðið er með Ungverjum, Svartfellinum og Serbum í riðli sem spilaður er í Munchen. Fyrsti leikurinn er gegn Serbum 12. janúar. „Eiginlega bara hvernig hann talar og náttúrulega hvað hann segir. Metnaðaðarfullur og markmiðin skýr. Mér finnst hann allavega ná vel til mín, bæði hvað hann er að segja og hvernig hann segir það,“ sagði Aron í viðtali við Henry Birgi Gunnarsson. Aron er nú kominn með þjálfara sem hann spilaði sjálfur með í landsliðinu í mörg ár. Er það ekkert skrýtið? „Sko, nei ekki kannski beint skrýtið. Þegar við hittumst tveir þá erum við kannski meiri félagar, við getum orðað það þannig. Svo höfum við átt fundi þar sem hann er landsliðsþjálfari og ég bara leikmaður og fyrirliði. Við náum alveg að stilla okkur inn á það.“ Töluverðar væntingar eru gerðar til íslenska liðsins á Evrópumótinu í ár en það hefur lítil áhrif á Aron. „Við erum búnir að vera með gríðarlega væntingar síðustu ár til okkar. Við höfum lært mjög mikið af síðustu árum, sérstaklega síðustu tveimur eða þremur. Ég hef bullandi trú á því að við munum ráða vel við það. Við erum með góð markmið og mér finnst það svolítið þægilegt markmið að stefna á Ólympíuleikana því það segir sig sjálft að þá þurfum við að ná góðum áragnri.“ Allt innslagið úr Sportpakka kvöldsins má sjá í spilaranum hér fyrir ofan
Landslið karla í handbolta EM 2024 í handbolta Mest lesið Ricky Hatton dáinn Sport Sturluð lokaumferð fyrir skiptingu: Hvaða lið enda fyrir ofan strik? Íslenski boltinn Stefnir á heimsmet og segist aldrei hafa verið í betra formi Sport Sjáðu mörkin úr stórsigrum Arsenal og Spurs og dramatíkina í Lundúnum Enski boltinn „Draumur síðan ég var krakki“ Fótbolti Guðrún Karítas fjarri nýja metinu á sínu fyrsta HM Sport Dagskráin í dag: Manchester-slagur á sófasunnudegi Sport Vandræðalegt víti frá Messi Fótbolti Áfall fyrir Norðmenn: „Þetta var mun verra en ég hélt“ Sport Ragnhildur endaði önnur eftir bráðabana Golf Fleiri fréttir Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Haukar sóttu tvö stig norður Sneypuför Stjörnumanna til Eyja Viggó magnaður í dramatísku jafntefli Staðan grafalvarleg og HSÍ leitar nýrra leiða Uppgjör: Valur - FH 27-32 | Jón Þórarinn skellti í lás þegar FH sótti tvö stig á Hlíðarenda ÍR komið á blað þökk sé ótrúlegri frammistöðu Baldurs Fritz Fimm íslensk mörk í stórtapi Kolstad Janus Daði komst ekki á blað í naumu tapi Bognir en hvergi bangnir: „Ekki alltaf sólskin og sleikjóar“ Ómar Ingi fór áfram hamförum Engin vandamál hjá Arnari Birki og félögum Óðinn markahæstur á vellinum Rétthentu landsliðshornamennirnir í stuði Gamla merkið verður áfram á landsliðsbúningunum Birna Berg snýr aftur í landsliðið og tveir nýliðar Reif gjallarhornið úr höndum stuðningsmanns eftir fúkyrðaflaum Donni og félagar örugglega áfram í Evrópudeildinni Nýliðar KA/Þórs byrja með sigri Langþráð hjá Melsungen Viggó markahæstur í eins marks tapi KA lagði nýliðana á Selfossi Stórleikur Söndru tryggði ÍBV sigur Hófu titilvörnina með sigri og Sara með stórleik á Ásvöllum „Verður ekki meira svekkjandi en þetta“ Sjá meira