Hefur ekki áhyggjur af starfinu og segist hafa stuðning stjórnarinnar Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 16. desember 2023 07:00 Erik ten Hag segist finna fyrir stuðningi. Visionhaus/Getty Images Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, segist ekki hafa áhyggjur af því að hann sé að fara að missa vinnuna sína á næstunni þrátt fyrir slæmt gengi liðsins undanfarið.
Spilamennska Manchester United á tímabilinu hefur ekki heillað stuðningsmenn liðsins og liðið situr nú í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 27 stig eftir 16 leiki, tíu stigum á eftir toppliði Liverpool. Liðið mætir einmitt Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á morgun, en Manchester United kemur inn í leikinn með tvo tapleiki í röð á bakinu. United mátti þola 3-0 tap á heimavelli gegn Bournemouth í síðasta deildarleik áður en liðið tapaði 1-0 gegn Bayern München í Meistaradeildinni í miðri viku og féll þar með alfarið úr leik í Evrópukeppnum. Þá hefur síðasta viðureign Manchester Unted og Liverpool nokkuð verið rifjuð í aðdraganda leiks morgundagsins þar sem Rauði herinn frá Liverpool vann ótrúlegan 7-0 sigur. Ten Hag segist þó finna fyrir stuðningi innan félagsins. „Ég finn fyrir stuðningi og það rímar við það sem mér er sagt. Það er allt í góðu. Ég er bara að einbeita mér að vegferðinni, ég er að einbeita mér að því að gera liðið og einstaklingana betri,“ sagði Ten Hag á blaðamannafundi í gær. „Það er það sem ég hef áhyggjur af og er að einbeita mér að. Ég get ekki farið að gleyma mér í tali um hvort ég sé að missa vinnuna. Það hjálpar mér ekki neitt.“ „Við erum óstöðugir og ég þarf að einbeita mér að því að smíða lið sem getur haldið hæsta gæðaflokki lengur.“
Enski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sjá meira