Lífið

Há­vær smellur þegar Rúrik brotnaði

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Hér má sjá Rúrik með höndina í gifsi og svo hvernig hann heldur á manninum rétt áður en höndin brotnar undan þunganum.
Hér má sjá Rúrik með höndina í gifsi og svo hvernig hann heldur á manninum rétt áður en höndin brotnar undan þunganum.

Rúrik Gíslason, fyrrverandi fótboltamaður og Ice Guys-meðlimur, braut á sér höndina í dag við tökur á sirkusatriði í þýskum sjónvarpsþætti.

Í myndbandi sem Rúrik deildi á Instagram-hringrás sinni í dag má sjá hvernig handarbrotið atvikaðist. Þar liggur Rúrik á gólfinu með aðra hendi fyrir aftan bak beygða í 90 gráður. Síðan lyftir hann loftfimleikamanni með höndinni áður en hún brotnar.

Hann sýnir annars vegar hvernig atriðið hefði átt að vera og svo þegar það mistekst. Hér fyrir neðan má sjá myndbandið sem er ekki fyrir viðkvæma þar sem það heyrist greinilega með háværum smelli þegar höndin brotnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.