Lífið

Ungmennaþing á Hvols­velli – hlustað á börn og ung­linga

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Oddur Helgi Ólafsson, formaður ungmennaráðs Rangárþings eystram sem er allt í öllu í sambandi við ungmennaþingið á Hvolsvelli í dag.
Oddur Helgi Ólafsson, formaður ungmennaráðs Rangárþings eystram sem er allt í öllu í sambandi við ungmennaþingið á Hvolsvelli í dag. Aðsend

Það var mikið um að vera á Hvolsvelli í dag því þá fór fram ungmennaþing þar sem unga fólkið ræddi skólamál, félagslíf, menningu og fræðslumál. Tillögum þingsins verður síðan komið til sveitarstjórnar með von um úrbætur um það sem betur mætti fara.

Ungmennaþing Rangárþings eystra hófst klukkan hálf ellefu í morgun í Hvolsskóla þar sem nemendur í 1. til 6. bekk sátu þingið fram til hádegis og eftir hádegi voru það nemendur í 7. bekk og eldri sem sátu þingið.

Oddur Helgi Ólafsson er formaður ungmennaráðs og veit allt um ungmennaþing dagsins.

„Þetta er þriðja árið í röð, sem við gerum þetta og við höldum þing, sem þetta bara til að heyra raddir unga fólksins. Við erum orðið barnvænt samfélag og okkur finnst mjög mikilvægt og stjórnsýslunni þykir það líka mjög mikilvægt að heyra hvað börn og unglingar hafa að segja um málefni sveitarfélagsins,“ segir Oddur Helgi.

Ungmennaþingið fer fram í dag í Hvolsskóla á Hvolsvelli.Aðsend

Þetta er mjög vel gert hjá ykkur og flott framtak.

„Já þakka þér fyrir það, við erum mjög ánægð með þetta og það eru allir mjög stoltir af þessu. Ég vil bara segja að sveitarstjórnin hefur verið mjög samvinnuþýð í þessu og það eru allir bara mjög jákvæðir fyrir ungmennaráðinu.“

Oddur Helgi segir mörg mál vera á dagskrá í dag, meðal annars um félagslíf unga fólksins og menningarmál.

„Og svo eru sumir göngustígar illa upplýstir og þetta eru auðvitað það sem börnin taka eftir því þau eru ekki að keyra, þau eru að ganga göngustígana, sem þarf greinilega að lýsa upp betur,“ segir Oddur Helgi og bætir við.

„Við tökum svo saman niðurstöðurnar og sendum á sveitarstjórn og þau vinna úr þessum málum, skoða hvað börnin og unglingarnir hafa að segja og vinna úr þessum og framkvæma sem þau geta framkvæmt".

Mikil ánægja er hjá íbúum Rangárþings eystra með ungmennaþingið og að börn og unglingar fá að hafa áhrif í sveitarfélaginu með þingi sem þessu.Aðsend





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.