Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum segir að takmarkanir fjölmiðla hafi verið settar á til að byrja með vegna takmarkaðs mannafla til að fylgja þeim inn á svæðið.
Undanfarna daga hefur einn fulltrúi fjölmiðils fengið aðgang að svæðinu til kvik- og ljósmyndunar með þeim fyrirmælum að myndefni skuli deilt með öðrum miðlum.
„Okkur skorti mannskap til að sinna þessu verkefni og vildum á viðkvæmum tíma hleypa íbúum inn í sinn heimabæ. Margir voru ekki í góðu ástandi,“ segir Úlfar og tekur fram að það hafi aldrei verið markmið að halda þessu fyrirkomulagi til streitu til langs tíma. Tilkynnt var á upplýsingafundi almannavarna að fyrirkomulaginu yrði breytt í dag.
Spurður hvort að atvik er varðar ljósmyndara RÚV sem átti sér stað síðustu helgi hafi haft ákvörðun á skert aðgengi fjölmiðla segir Úlfar svo ekki. Þá reyndi ljósmyndari RÚV að komast inn í mannlaust hús. Hann baðst síðar afsökunar á því.
„Það atvik fór einstaklinga illa í íbúa Grindavíkur. En var ekki ástæða fyrir takmörkunum.“
Úlfar segist enn fremur ekkert sjá neitt athugunarvert við fjölmiðla og það hafi ekki verið ástæða takmarkanna.
Alls ekki komið að lokuðum dyrum
Fréttamaður bendir á að á stríðshrjáðum svæðum fái fjölmiðlar aðgang án hindrana og setji sig reglulega þannig í aðstæður þar sem þeir eru í hættu. Spyr hvort þetta séu að einhverju leyti ekki sambærilegar aðstæður.
„En af því að þú minnist á fréttamennsku í stríðshrjáðu svæði þá er ágætt að minna á það að þegar ég horfi á kvöldfréttir á RÚV eða Stöð 2 þá horfi ég yfirleitt á sömu fréttamyndina á Gasa svæðinu,“ segir Úlfar.
Hann segir að fjölmiðlar hafi alls ekki komið að lokuðum dyrum í Grindavík. Það megi ekki gleyma því. Fjölmiðlar hafi fengið að fylgja fólki inn á svæðið og hafi haft gott aðgengi að aðgerðastjórn í bæði Skógarhlíð og Reykjanesbæ.
„Þetta samstarf og upplýsingagjöfin, eins og ég horfi á það, hefur verið að mínu mati með góðum og ásættanlegum hætti.“
Kæran ótímabær
Hvað varðar kæru Blaðamannafélags Íslands á hendur embætti Úlfars til dómsmálaráðuneytis segir hann hana ótímabæra og „ákveðið frumhlaup í svona aðgerðum“ sem snúi að því að hjálpa fólki í erfiðum aðstæðum og hafi verið hrakin frá heimili sínu.
„Ég held að fjölmiðlar megi horfa í aðrar átti og einbeita sér að því sem þau eru best í. Að afla frétta.“
Þá er kannski gott að vera ekki að hindra þá í að afla frétta?
„Það var hindrun í gangi í nokkra daga en við lyftum hindrun í dag. Ég held að það sé farsæl niðurstaða. Fyrir bæði viðbragðsaðila og fjölmiðla,“ segir Úlfar en að skipulag sé í höndum almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Bæði innlendum og erlendum fjölmiðlum verði hleypt inn á svæðið í skipulögðum hópferðum.
„Ég á ekki von á öðru en að það gefist vel.“