De Zerbi gæti fengið bann fyrir harða gagnrýni á dómara Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. nóvember 2023 16:09 Roberto De Zerbi er ekki mikill aðdáandi enskra dómara. getty/Steve Bardens Knattspyrnustjóri Brighton, Roberto De Zerbi, gæti verið á leið í bann vegna ummæla sinna um dómara eftir leikinn gegn Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni.
De Zerbi dró hvergi af í gagnrýni sinni á dómara eftir leikinn á sunnudaginn. Honum sagðist meðal annars vera illa við meirihluta dómara á Englandi. „Ég er hreinskilinn, mér líkar ekki við 80 prósent allra dómara á Englandi. Þetta er ekki nýtt, mér líkar ekki vel við þá,“ sagði Ítalinn. „Vegna hegðunar þeirra, mér líkar ekki hegðun þeirra á vellinum,“ svaraði De Zerbi er hann var spurður af hverju honum væri svona í nöp við enska dómara. Enskir fjölmiðlar greina frá því að enska knattspyrnusambandið sé með ummæli De Zerbis til skoðunar. Sumum innan dómaranefndarinnar finnst ítalski stjórinn hafa farið einum of oft yfir strikið í gagnrýni sinni á dómara og aðgerða sé þörf. De Zerbi gæti því fengið sekt eða jafnvel leikbann. Hann fór tvívegis í eins leiks bann á síðasta tímabili fyrir dómaratuð. Brighton gerði 1-1 jafntefli við Sheffield United á sunnudaginn. Brighton komst yfir með marki Simons Adingra á 6. mínútu en Sheffield United jafnaði á 74. mínútu þegar Adam Webster setti boltann í eigið mark. Skömmu áður var Mahmoud Dahoud, leikmaður Mávanna, rekinn af velli. Brighton er í 8. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með nítján stig eftir tólf umferðir. Strákarnir hans De Zerbis eru án sigurs í síðustu sex deildarleikjum.
Enski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Tielemans tók vítið með Bruno Enski boltinn Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Fleiri fréttir Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Sjá meira