Hneykslaðir á Glazerunum fyrir að mæta ekki í jarðarförina Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. nóvember 2023 12:01 Sir Bobby Charlton var lagður til hinstu hvílu í gær. getty/Karwai Tang Lítil ánægja er hjá stuðningsmönnum Manchester United með þá ákvörðun eigenda félagsins að mæta ekki í jarðarför Sir Bobbys Charlton.
Jarðarför Charltons fór fram í dómkirkjunni í Manchester í gær. Fjölmennt var í henni en athygli vakti að enginn fulltrúi Glazer-fjölskyldunnar, eigenda United, var viðstaddur. Glazerarnir voru hræddir um að stuðningsmenn United myndu nýta tækifærið til mótmæla gegn þeim og vildu ekki að athyglin beindist að þeim í jarðarförinni. Stuðningsmenn United eru margir hverjir hneykslaðir á Glazerurnum fyrir að láta ekki sjá sig í jarðarförinni og segja það enn eitt dæmi um hversu lítið þeim er annt um félagið sem þeir eiga. „Það kemur ekki á óvart að enginn frá Glazer-fjölskyldunni sá sér fært að votta sennilega besta leikmanni í sögu félagsins virðingu sína. Glazerarnir hafa sýnt aftur og aftur að þeir eru úr öllum tengslum við félagið og stuðningsmennina og þetta var enn eitt dæmið um það,“ sagði í yfirlýsingu stuðningsmannahópsins The 1958 sem berst gegn Glazer-fjölskyldunni. Bandaríkjamennirnir eru á barmi þess að selja fjórðungshlut í United til Íslandsvinarins Jim Radcliffe. Hann vonast til að fá að stýra öllu því sem kemur að fótboltanum hjá félaginu.
Enski boltinn Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Körfubolti „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Körfubolti Fleiri fréttir Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Sjá meira