Hetja Chelsea valin í enska landsliðið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. nóvember 2023 14:30 Cole Palmer gæti leikið sinn fyrsta landsleik fyrir England í vikunni. getty/Ryan Pierse Cole Palmer, sem skoraði jöfnunarmark Chelsea gegn Manchester City í gær, hefur verið valinn í enska landsliðið.
Palmer hefur spilað vel fyrir Chelsea að undanförnu og skorað úr vítaspyrnum í síðustu tveimur leikjum liðsins, í 2-2 jafnteflinu við Tottenham fyrir viku og 4-4 jafnteflinu við City í gær. Palmer, sem Chelsea keypti frá City fyrir tímabilið, skoraði jöfnunarmark Bláliða gegn Englandsmeisturunum þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Last-gasp opportunity to level the match from the penalty spot? Step up, Cole Palmer pic.twitter.com/3uIE9UXQWt— Premier League (@premierleague) November 13, 2023 Gareth Southgate hefur nú verðlaunað Palmer fyrir góða frammistöðu í síðustu leikjum með því að velja hann í enska landsliðið fyrir síðustu leiki þess í undankeppni EM 2024. Rico Lewis, átján ára leikmaður City, var einnig valinn í enska landsliðið í fyrsta sinn. Saman hafa þeir aðeins byrjað 21 leik í ensku úrvalsdeildinni. England mætir Möltu og Norður-Makedóníu í síðustu tveimur leikjum sínum í undankeppni EM. Englendingar eru öruggir með sæti á EM í Þýskalandi á næsta ári. Palmer, sem er 21 árs, hefur leikið ellefu leiki fyrir Chelsea, skorað fjögur mörk og gefið fjórar stoðsendingar.
Enski boltinn EM 2024 í Þýskalandi Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Bakgarður í rigningu og roki: „Stjórna ekki veðrinu en get búið mig undir það“ Sport „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Fleiri fréttir Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Sjá meira