Þó nokkur verkefni vegna ökumanna og annarra í annarlegu ástandi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 13. nóvember 2023 05:55 Lögregla sinnti ýmsum verkefnum í umferðinni í nótt auk þess að vísa einstaklingum í annarlegu ástandi út þar sem þeir voru ekki velkomnir. Vísir/Vilhelm Lögregla sinnti nokkrum útköllum í gærkvöldi og nótt þar sem tilkynnt var um einstaklinga í annarlegu ástandi og aðstoðar þurfti við til að koma þeim á brott.
Þá var nokkuð um uppákomur þar sem ökumenn undir áhrifum vímuefna komu við sögu. Í Kópavogi var lögreglu kölluð til vegna manns sem var sagður æstur og hafa valdið skemmdum á sameign fjölbýlishúss. Reyndist hann verulega ölvaður og var handtekinn og vistaður í fangageymslu. Lögreglu í Kópavogi barst einnig tilkynning um ökumann sem hafði ekið utan í kyrrstæðar bifreiðar og reyndist sá einnig mjög greinilega undir áhrifum; var sljór og átti erfitt með tal og að halda sér vakandi. Hann var sömuleiðis handtekinn og vistaður í fangageymslu. Í póstnúmerinu 104 voru skráningarmerki fjarlægð af nokkrum ökutækjum þar sem ekki hafði verið staðið í skilum á vátryggingu þeirra. Þá var tilkynnt um þjófnað í matvöruverslun en þjófurinn var á brott þegar lögregla mætti á vettvang og fannst ekki við leit. Einn var stöðvaður í 104 sem játaði að hafa neytt áfengis fyrr um kvöldið og reyndist undir áhrifum. Þá barst tilkynning um ökumann sem ók á ljósastaur í póstnúmerinu 103 en hann var enn í ökumannssætinu þegar komið var að og var greinilega ölvaður. Lögreglu bárust einnig tilkynningar um mann sem var sagður hafa ráðist á starfsmann hótels í miðborginni og grunsamlegan mann með kúbein í Garðabæ. Hvorugur fannst þrátt fyrir leit.
Lögreglumál Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Fleiri fréttir Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Sjá meira