Stormi spáð norðvestantil Jón Þór Stefánsson skrifar 4. nóvember 2023 07:57 Lægð frá norðursjó stjórnar veðrinu á Íslandi þessa helgina. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm „Á Norðursjó er alldjúp lægð sem þokast norðvestur og síðar vestur og stjórnar veðrinu hjá okkur,“ segir á vef Veðurstofu Íslands um veðurspá dagsins. Þar segir að í dag verði norðaustlæg átt og víða stinningskaldi eða allhvasst.
Þá segir að hvassvirði eða stormur verði í kvöld eða á morgun á norðvesturlandinu. Skúrir eða él á Norður- og Austurlandi, en bjart að mestu sunnan heiða. Seint í dag og á morgun megi búast við nokkuð samfelldri rigningu eða slyddu á norðaustanverðu landinu og snjókomu til fjalla. Hitinn verði yfirleitt á bilinu núll upp í sjö stig og mildast verði syðst á landinu 0 til 7 stig. Fram kemur að á mánudag fari að lægja, en áfram megi búast við úrkomu norðaustanlands. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag: Norðaustan 13-20 m/s, hvassast um landið norðvestanvert. Rigning, slydda eða snjókoma norðan- og austanlands, en þurrt að kalla sunnantil á landinu. Hiti 0 til 6 stig, mildast syðst.Á mánudag:Minnkandi norðaustanátt, 5-13 síðdegis. Rigning eða slydda með köflum og snjókoma til fjalla, en yfirleitt þurrt á Suður- og Vesturlandi. Hiti breytist lítið.Á þriðjudag:Heldur vaxandi suðaustanátt. Lítilsháttar væta sunnan- og austanlands, hiti 1 til 6 stig. Rofar til norðan heiða með hita kringum frostmark.Á miðvikudag og fimmtudag:Austlæg átt og rigning með köflum, en þurrt að kalla á Vesturlandi. Hiti víða 2 til 7 stig.Á föstudag:Útlit fyrir svipað veður áfram.
Veður Mest lesið Mikill meirihluti féll fyrir íslenskri gervigreindarmynd Innlent Hola í vegi tók fjóra bíla úr umferð á vanræktum vegkafla Innlent Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Innlent Jón Baldvin segir söguskýringu Dags af og frá: Samdi við Davíð um EES Innlent Þór styrkti Kvennaathvarfið og fær að halda pútternum Innlent Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Erlent Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Erlent Skrifstofustjórinn fær ekki áheyrn og situr uppi með feitan reikning Innlent Tólf prósent Íslendinga á bótum Innlent Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Erlent Fleiri fréttir Gular veðurviðvaranir í kortunum Köldu lofti beint til landsins Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Ört dýpkandi lægð á leiðinni og appelsínugular viðvaranir Appelsínugul viðvörun á morgun Vara við stórhríð á Austurlandi Snjókoma víða en bjart sunnan heiða Væta sunnantil og töluverð hláka í höfuðborginni Hvetja fólk til að fara fyrr heim vegna veðurs Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu vegna snjókomu Snjókoma á höfuðborgarsvæði í dag og á morgun Úrkomusvæði með snjókomu fer yfir vesturhelming landsins Gular veðurviðvaranir á Austurlandi Snýst í norðanátt og snarpar hviður austantil Útlit fyrir lægðagang og umhleypinga Hvöss austanátt fylgir alldjúpri lægð í dag Gul veðurviðvörun á Suðausturlandi Hitinn að skríða yfir frostmark sunnan heiða Herðir á frosti í kvöld Él og snjókoma norðan- og austantil Snjókoman náði ekki yfir Hellisheiðina Útlit fyrir hríðarbyl á Suðurlandi Draga kalt heimskautaloft yfir landið næstu daga Vara við snörpum vindhviðum Köldu heimskautalofti enn beint til landsins Kaldri norðlægri átt beint til landsins Dálítil él norðan- og austantil en annars bjart að mestu Dregur úr vindi og kólnar í kvöld Vindasamt víða á landinu Áfram léttskýjað á Suðvesturhorninu Sjá meira